Skák.is heldur áfram með kynningar á Ólympíuförunum. Í dag er kynnt til sögunnar Elsu Maríu Kristínardóttur félagsmaður Hugins, sem er varamaður í kvennaliðinu.
Nafn
Elsa María Kristínardóttir
Taflfélag
Huginn
Staða
Varamaður
Hvenær tókstu fyrst þátt á Ólympíuskákmót og hversu oft hefur þú tekið þátt?
Tók fyrst þátt 2008, 2012 og svo núna 🙂
Minnisstæðasta skák á Ólympíuskákmóti og þá af hverju?
Skákin á móti Önnu Rudolf frá Ungverjalandi, var með kolunnið fór úr plús 9 í mínus 18 í einum leik! Geri aðrir verr 😉
Minnisstæðasta atvik á Ólympíuskákmóti?
Við vorum að tefla á móti Afríkuþjóð og stelpan sem ég var að tefla við horfði á mig í svona korter áður en skákin byrjaði því henni fannst magnað að ég væri með blá augu!
Hverjar eru þínar væntingar/vonir um gengi íslensku liðanna?
Að við verðum í einhverju sæti fyrir ofan það sem stigin segja til um.
Hverju spáir þú fyrir um sigurvegara?
Armeníu í karla og Rússum í kvenna fyrst þær fengu að vera með 😉
Hver er/verður þinn undirbúningur fyrir Ól?
Landsliðsæfing einu sinni í viku og heimastúderingar 🙂
Hefurðu áður teflt fyrir norðan heimskautsbaug?
Neibb 🙂
Eitthvað að lokum?
😀