Jóhanna Björg

Kynningar á Ólympíuförunum sem þátt taka í Ólympíuskákmótinu sem fram fer í Tromsö (eða Sochi ) dagana 1.-14. ágúst nk. standa yfir á skák.is.  Skákhuginn.is fékk góðfúslegt lyfi til að birta kynningarnar á félagsmönnum Hugins sem sæti eiga í Olympíuliði Íslands. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir,  sem teflir á fjórða borði í kvennaliðinu er kynnt fyrst  til sögunnar.

Jóhanna Björg
Jóhanna Björg

Nafn

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir

Taflfélag

Skákfélagið Huginn

Staða

Fjórða borð í kvennaliðinu.

Hvenær tókstu fyrst þátt á Ólympíuskákmót og hversu oft hefur þú tekið þátt?

Ég tók fyrst þátt árið 2010 í Síberíu og var einnig á mótinu í Istanbúl svo hef tekið þátt tvisvar.

Minnisstæðasta skák á Ólympíuskákmóti og þá af hverju?

Eins og þær eru nú margar eftirminnilegar stendur ein upp úr frá mótinu í Istanbúl árið 2012. Í elleftu umferð tefldum við við Albaníu og ég tefldi á móti stigalágum. Ég tefldi byrjunina alveg þokkalega og fékk kolunnið endatafl en tók þá mjög slæmar ákvarðanir. Þegar ég sá það að ég var komin með koltapað leit ég á stelpurnar en þá var Hallgerður að tapa, þetta leit ekkert sérstaklega vel út hjá Lenku en allavega jafntefli og Tinna búin að vinna. Ég var því að kosta okkur sigur í þessari viðureign sem var býsna mikilvæg enda síðasta umferðin. Bruna Tuzi hafði hvítt og var komin með fjarlægt frípeð sem ég gat ekki stoppað. Ég átti þó mitt en hún gat stoppað það, það eina sem hún þurfti að gera var að leika kóngnum undir peðið mitt. Hún var aðeins of æst í að koma sínu peði upp í borð og gleymdi því síðasta kóngsleiknum. Þannig fór mitt peð líka upp í borð og ég með unna stöðu og viðureignin vannst.

Minnisstæðasta atvik á Ólympíuskákmóti?

Það eru svo mörg atriði sem sitja eftir að það er erfitt að velja. Lyfturnar í Síberíu voru svona frekar shaky og áttu það til að skellast á mann á meðan maður var að komst út svo helsta aðferðin var að hálf hoppa út úr lyftunum. Eitt skiptið byrjaði lyftan að gefa frá sér hávær skruðnings hljóð. Allir í lyftunni litu á hvern annan og byrjuðu að hlæja svona við erum öll að fara að deyja hlátri (það fóru allir út á 3. hæð). Eftir þetta löbbuðum við oftast upp allar tólf hæðirnar

Hverjar eru þínar væntingar/vonir um gengi íslensku liðanna?

Að okkur muni ganga betur en upphafsstaðan og að öllum í liðinu gangi vel miðað við rating performance

Hverju spáir þú fyrir um sigurvegara?

Í opnum flokki spái ég Armennum sigur en í kvennaflokki Kína

Hver er/verður þinn undirbúningur fyrir Ól?

Við höfum mætt reglulega í tíma hjá Ingvari. Annars bara að tefla á netinu til að haldi sér í æfingu og skoða nýjar byrjanir

Hefurðu áður teflt fyrir norðan heimskautsbaug?

Ég hef ekki teflt fyrir norðan heilskautabaug en ég hef teflt í Kúlusúk og Tassilaq á Grænlandi sem eru ekki langt frá heimsskautabaug

Eitthvað að lokum?

Áfram Ísland