Örn Leó Jóhannsson sigraði örugglega á hraðkvöldi Hugins sem haldið var mánudaginn 6. febrúar sl. Örn Leó fékk 13v af 14 mögulegum og var það aðeins Eiríkur Björnsson sem náði að merkja við hann. Annar var Vigfús Ó. Vigfússon með 10,5v og þriðji var Eiríkur Björnsson með 10v. Þátttakendur tefldu tvöfalda umferð með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik. Þótt umferðirnar væru 14 þá tók þetta ekki svo langan tíma þar sem báðar skákirnar við hvern andstæðing voru tefldar í röð. Örn Leó dró Hjálmar Sigurvaldason við mikinn fögnuð Björgvins til að byrja með. Sjálfur valdi Örn Leó úttektarmiða frá Saffran en það á eftir að koma í ljós hvað Hjálmar velur. Næsta skákkvöld verður atkvöld mánudaginn 27. febrúar.

Lokastaðan á hraðkvöldinu:

  1. Örn Leó Jóhannsson, 13v/14
  2. Vigfús Ó. Vigfússon, 10,5v
  3. Eiríkur Björnsson, 10v
  4. Sigurður Freyr Jónatansson, 8,5v
  5. Hjálmar Sigurvaldason, 6v
  6. Björgvin Kristbergsson, 5v
  7. Óttar Örn Bergmann Sigfússon, 1,5v
  8. Pétur Jóhannesson, 1,5

Úrslitin í chess-results: