Þröstur Þórhallsson sveið Benedikt Jónasson í drottningarendatafli eftir frumlega byrjun

Fimmta og næst síðasta umferð Nóa-Síríus mótsins var tefld í Stúkunni á þriðjudagskvöldið, 7. febrúar. Eins og endranær var skákgleðin við völd. Úti var kolvitlaust veður og myrkur, ekki hundi út sigandi. Inni var ljós, þar ríkti friður. Yfir vötnum sveif angurvær andi Caissu og umlukti þá undursamlegu uppvakninga sem annað hvort ráfuðu um salarkynnin þar, eða sátu eins og steinrunnir undir álagahjúpi þeirrar gyðju sem sumir menn telja öðrum gyðjum ljúfari, betri og fegurri. Já, hún verður að teljast einstök, þessi innri ró sem menn finna þar sem skákmenn koma saman og skynja að fegurðinni og ástríðunni er deilt með öðrum.

Af A-flokki

Daði Ómarsson tefldi vel með hvítu mönnunum gegn nýbökuðum Skákmeistara Reykjavíkur, Guðmundi Kjartanssyni

Daði Ómarsson tefldi vel með hvítu mönnunum gegn nýbökuðum Skákmeistara Reykjavíkur, Guðmundi Kjartanssyni og hafði sigur. Þröstur Þórhallsson sveið Benedikt Jónasson í drottningarendatafli eftir frumlega byrjun, þar sem Benni taldi að hann myndi halda jöfnu en Þröstur hafði séð lengra. Jóhann Hjartarson sigraði Vigni Vatnar Stefánsson í skák þar sem stórmeistarinn fékk snemma mun betra tafl og sleppti aldrei tökunum á ungstirninu.

Höfðingjarnir, Jón L. Árnason og Björn Þorfinnsson, skildu jafnir þegar komið var út í hróksendatafl og ljóst að hvorugur komst lönd eða strönd. Þá vann Jón Viktor Gunnarsson góðan sigur á Guðmundi Gíslasyni í skák sem var bæði flókin og óljós langt fam eftir tafli. Helgi Áss Grétarsson tefldi eins og sá sem valdið hefur gegn Sigurbirni Björnssyni og vann. Þorsteinn Þorsteinsson var fyrstur að klára sína skák þegar hann sigraði hinn unga og efnilega Gauta Pál Jónsson nokkuð örugglega í snaggaralegri skák.

Jón L. Árnason og Björn Þorfinnsson skildu jafnir

Viðureign Dags Ragnarssonar og Friðriks Ólafssonar var frestað af óviðráðanlegum orsökum. Bolvíkingarnir Halldór Grétar Einarsson og Guðmundur Halldórsson háðu harða rimmu þar sem sá fyrrnefndi hrósaði happi eftir að Guðmundur virist fá betra út úr byrjuninni. Hrafn Loftsson og Sigurður Daði Sigfússon skildu jafnir þar sem mættust stálin stinn og Oliver Aron Jóhannesson hafði sigur á Kristjáni Eðvarðssyni með skæðri kóngssókn af gamla skólanum. Þá vann Bárður Örn Birkisson góðan sigur á Lenku Ptáchníkovu.

Upplýsingar um önnur úrslit umferðarinnar má finna hér: http://chess-results.com/tnr257789.aspx?lan=1&art=2&rd=5&wi=821

Þegar einungis ein umferð er ótefld, er staðan í A-flokki þessi:

Daði Ómarsson og Þröstur Þórhallsson eru jafnir og efstir með fjóran og hálfan vinning í fimm skákum. Við erum ekki óvön slíku frá stórmeistaranum, Þresti Þórhallssyni, en Daði Ómarsson hefur komið á óvart og teflt manna best á mótinu. Nú er ljóst að þessir tveir munu heyja hreina úrslitaviðureign í sjöttu og síðustu umferð. Vinningi færra en þeir félagar, með þrjá og hálfan, hafa Guðmundur Kjartansson, Jóhann Hjartarson, Helgi Áss Grétarsson, Björgvin Jónsson og Jón Viktor Gunnarsson.

Stöðuna í A-flokki má annars finna hér: http://chess-results.com/tnr257789.aspx?lan=1&art=1&rd=5&wi=821

B-flokkur

Hörður Aron Hauksson og Jón Trausti Harðarson

Í B-flokki er ekki síður hart barist. Á topp borði varð efsti maður mótsins, Hörður Aron Hauksson, loks að láta í minni pokann þegar geysi sterkur Jón Trausti Harðarson sýndi klærnar. Oliver Alexander Mai gerði sér lítð fyrir og sigraði Agnar Tómas Möller nokkuð óvænt. Þá sigraði Stephan Briem, Óskar Víking Davíðsson sem verður að teljast til tíðinda. Hrund Hauksdótitr tapaði fyrir Ólafi Evert Úlfssyni, Róbert Luu sigraði Birki Ísak Jóhannsson og Jón Eggert Hallsson sigraði Svövu Þorsteindsóttur.

Önnur úrslit umferðarinnar má sjá ef meðfylgjandi krækju er fylgt: http://chess-results.com/tnr257788.aspx?lan=1&art=2&rd=5&wi=821

Staðan í B-flokki er þessi

Efstir og jafnir, með fjóra vinninga í fimm skákum, eru: Hörður Aron Hauksson, Alexander Oliver Mai og Jón Trausti Harðarson. Á hæla þeim með þrjá og hálfan vinning eru Stephan Briem, Ólafur Evert Úlfsson og Róbert Luu. Þar á eftir koma svo Ástralíufarinn, Birkir Karl Sigurðsson, Agnar Tómas Möller, Óskar Víkingur Davíðsson, Jón Eggert Hallsson, Gunnar Erik Guðmundsson, Örn Alexandersson og Halldór Atli Kristjánsson, allir með þrjá vinninga.

Það er deginum ljósara að hart verður barist í síðustu umferð sem tefld verður í Stúkunni við Kópavogsvöll á þriðjudaginn næsta. Allir skákáhugamenn eru hvattir til þess að líta við, taka skákpúlsinn margfræga, bergja á bleksvörtu kaffi í hvítri Stúku og finna þessa innri ró sem við skákmenn og -konur ein getum fundið. Komið fagnandi.

 


Myndaalbúm 5. umferðar