Óskar Víkingur Davíðsson vann eldri flokkinn og Þórdís Agla Jóhannsdótttir yngri flokkinn á Huginsæfing sem haldin var 26. september sl. Baráttan var mjög jöfn í eldri flokknum en þar voru Óskar, Stefán Orri Davíðsson og Batel Goitom Haile öll jöfn með 4v af sex mögulegum. Þau skipust á að vinna hvort annað, þannig að Batel vann Óskar, Stefán Orri vann Batel og Óskar vann Stefán Orra. Óskar var stighæstur með 14,5 stig og hlaut 1. sætið, Stefán Orri var annar með 14 stig og Batel þriðja með 13,5 stig. Það var athyglisvert að ekkert þeirra í efstu sætum leysti dæmið rétt og raunar voru það aðeins tveir sem leystu það rétt en það voru Óttar Örn Bergmann Sigfússon og Rayan Sharifa. Mér fannst þessi uppskera heldur rýr. Staðan er úr Franskri vörn og lausninimg_2906 byggist stöðuskilningi Gefnir voru fimm möguleikar og átti að merkja við þann rétta. Farið var yfir alla möguleikana áður en skilað var inn og kostir og gallar ræddir þannig að þótt menn séu ekki vanir að tefla þessa byrjun, þá hefði það ekki átt að koma að sök. Rétt svar er c sem gaf einn vinning en einnig var ég búinn að ákveða að gefa 1/2 vinning fyrir d þótt það sé heldur of mikið en það kom enginn með það svar.

Þórdís Agla fékk fullt hús vinninga í yngri flokk 5v í jafn mörgum skákum. Næstur á eftir Þórdísi kom Andri Hrannar Elvarsson með 4v og annað sætið var hans. Síðan komu Einar Dagur Brynjarsson, Sigurður Rúnar Gunnarsson, Gabríel Valgeirsson og Soffia Momuntjukí öll með 3v. Einar Dagur var hæstur á stigum og hlaut þriðja sætið. Það var einnig dæmi í yngri flokki en í þetta sinn var ekki gefinn vinningur fyrir rétta lausn. Farið var yfir það í tímanum og flestir sem glímdu við dæmið höfðu það rétt.
Í æfingunni tóku þátt: Óskar Víkingur Davíðsson, Stefán Orri Davíðsson, Batel Goitom Haile, Rayan Sharifa, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Brynjar Haraldsson, Einar Tryggvi Petersen, Þórdís Agla Jóhannsdóttir, Andri Hrannar Elvarsson, Einar Dagur Brynjarsson, Sigurður Rúnar Gunnarsson, Gabríel Valgeirsson, Soffia Momuntjuk, Brynjólfur Jan Brynjólfsson, Gunnar Freyr Valsson, Wiktoria Momuntjuk, Bjartur  Freyr Jörgensen Heider og Witbet Haile.

Næsta æfing verður mánudaginn 3. október 2016 og hefst kl. 17.15. Æfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengið er inn milli Subway og Fröken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.

Dæmið í eldri flokki á æfingunni:

Svartur á leik. Hvítur hefur meira rými eins og yfirleitt í þessu afbrigði frönsku varnarinnar. Hvernig getur svartur aukið virkni stöðunnar til að vega á móti meira rými hvíts ?

A.  Best er fyrir svartan að auka rými sitt með 1…..c4. Langtímamarkmiðið er að auka það enn frekar með b7-b5 og b5-b4.

B.  Best er að skap sér svæði á kóngsvæng með 1…..h6 og ef hægt er 2….g5 sem gefur svarti rými á kóngsvæng og létttir þrýstingi af miðborðinu.

C.  Svartur þar að stefna að því að ráðast á d4 peð hvíts. Best til þess er að leika 1. …Re7 til staðsetja riddarann síðar á f5 þar sem hann stendur mjög vel.

D.  F-peðið hefur mikilvægu hlutverki að gegna til að þróa svörtu stöðuna. Best er að leika 1…..f6 frekar 1….f5 sem lokar stöðunni meira. Báðar leiðirnar eru samt góðar til að þróa svörtu stöðuna.

E.  Til að koma riddaranum í spilið án þess að loka fyrir biskupinn er best að skipta upp á peðum á miðborðinu svo framhaldið verður 1…..cxd4, 2. cxd4 Bb4 + og svo Rg7.

Dæmið í yngri flokki á æfingunni.

Svartur á leik. Getur svartur haldið jafntefli. Merkið við besta möguleikann fyrir svart.

A.  1…..Kc8 og það verður patt eftir 2.Kc6  Kd8 og peðið áfram.

B.   1…..Ke6, á ekki alltaf að leika kónginum fram í endatöflum.

C.   1….Kd8 og hvítur getur ekki tekið andspænið þar sem kóngurinn kemst ekki til d6. Þegar hvítur leikur Kc6 leikur svartur Kc8 og tekur andspænið. Ef hvítur leikur ´peðinu fram endar skákin með patti.

D.   1….Ke8 og það verður patt eftir 2. Kc6  Kd8 og peðið áfram.

E.    Þettta er alveg vonlaust og best að gefa strax.