Páskaeggjamót Hugins verður haldið í 24. sinn mánudaginn 21. mars 2016, og hefst taflið kl. 17, þ.e. nokkru fyrr heldur en venjulegar mánudagsæfingar. Páskaeggjamótið kemur í stað mánudagsæfingar. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Mótið er opið öllum krökkum á grunnskólaaldri.

Allir þátttakendur keppa í einum flokki en verðlaun verða veitt í tveimur aðskildum flokkum. Páskaegg verða í verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í eldri flokki (fæddir 2000 – 2003) og yngri flokki (fæddir 2004 og síðar). Sá sem er efstur í hverjum árgangi fær einnig páskaegg sem og efstu þrjár stúlkurnar á mótinu. Að auki verða tvö páskaegg dregin út. Enginn fær þó fleiri en eitt páskaegg. Lítið páskaegg verður svo fyrir þá sem ekki vinna til verðlauna.

Páskaeggjamótið verður haldið í félagsheimili Hugins í  Álfabakka 14a í Mjóddinni. Inngangur er milli Subway og Fröken Júlíu en salur félagsins er á þriðju hæð hússins.