Páskaeggjamót Hugins verður haldið í 25. sinn mánudaginn 10. apríl 2017, og hefst taflið kl. 17, þ.e. nokkru fyrr heldur en venjulegar mánudagsæfingar. Páskaeggjamótið kemur í stað mánudagsæfingar. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Mótið er opið öllum krökkum á grunnskólaaldri. Skráningarform er er á skak.is og eru væntanlegir þátttakendur beðnir um að skrá sig til að auðvelda undirbúning mótsins. Mótið verður reiknð til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Allir þátttakendur keppa í einum flokki en verðlaun verða veitt í tveimur aðskildum flokkum. Páskaegg verða í verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í eldri flokki (fæddir 2001 – 2004) og yngri flokki (fæddir 2005 og síðar). Sá sem er efstur í hverjum árgangi fær einnig páskaegg sem og efstu þrjár stúlkurnar á mótinu. Að auki verða tvö páskaegg dregin út. Enginn fær þó fleiri en eitt páskaegg. Lítið páskaegg verður svo fyrir þá sem ekki vinna til verðlauna.

Páskaeggjamótið verður haldið í félagsheimili Hugins í  Álfabakka 14a í Mjóddinni. Inngangur er milli Subway og Fröken Júlíu en salur félagsins er á þriðju hæð hússins.

Skráning á páskaegggjamótið

Þegar skráðir keppendur: