Páskaskákmót Goðans-Máta 2013 verður á laugardagskvöldið !

Páskaskákmót Goðans-Máta verður haldið laugardagskvöldið 23. mars og hefst það kl 20:20 !! Mótið fer fram í sal Framsýnar að Garðarsbraut 26 á Húsavík. Tefldar verða 7 umferðir og verða tímamörkin 10 mín á mann, auk 5 sek viðbótartíma fyrir hvern leik.

 

Í verðlaun verða páskaegg fyrir þrjá efstu í fullorðinsflokki og handa öllum keppendum í flokki 16 ára og yngri. Vinningahæsti keppandinn fær nafnbótina Páskaskákmeistari Goðans-Máta 2013

Skráning í mótið er hjá formanni í síma 4643187 og 8213187 eða á lyngbrekku@simnet.is