Gawain Jones

Gawain Jones (2665) er sem stendur í 1-3 sæti á Politiken Cup sem stendur yfir í Danmörku. Gawain er með 5,5 vinninga af 6 mögulegum, ásamt tveimur öðrum skákmönnum. Gawain vann Jean-Pierre Le Roux (2560) í sjöttu umferð í gær.

Gawain Jones
Gawain Jones

Gawain verður með svart gegn Ungverska stórmeistarnum Richard Rapport (2701) í sjöundu umferð sem tefld verður í dag. Gawain er sjöundi stigahæsti skákmaðurinn á mótinu, en alls taka 313 keppendur þátt í því.

Beinar útsendingar.

Chess-results

Heimasíða Gawains.