Rúnar Ísleifsson varð efstur með fullt hús vinninga á fyrstu skákæfingu ársins á Húsavík sem fram fór sl. mánudagskvöld. Rúnar fékk 5 vinninga af 5 mögulegum. Tefldar voru skákir með 15 mín umhugsunartíma á mann.

Rúnar Ísleifsson

Úrslit kvöldsins.

  1. Rúnar Ísleifsson               5 af 5
  2. Heimir Bessason             3
  3. Hlynur Snær Viðarsson   2,5
  4. Hermann Aðalsteinsson  2,5
  5. Ævar Ákason                  1,5
  6. Sigurbjörn Ásmundsson  0,5

Næsti viðburður hjá okkur er Janúarmótið sem hefst um helgina. Skráningarfrestur í mótið rennur út á morgun fimmtudag.