21.4.2010 kl. 23:11
Rúnar Ísleifsson héraðsmeistari HSÞ 2010 !
Rúnar Ísleifsson varð héraðsmeistari HSÞ í skák, en héraðsmótinu lauk á Laugum nú í kvöld.
Rúnar fékk 5 vinninga af 7 mögulegum. Í öðru sæti varð Pétur Gíslason með 4,5 vinninga og Ármann Olgeirsson varð í þriðja sæti með 4 vinninga. Þetta var í annað sinn sem Rúnar verður héraðsmeistari í skák en fyrri titilinn vann Rúnar árið 2008.
Ármann Olgeirsson, Rúnar Ísleifsson og Pétur Gíslason.
Lokastaðan:
1. Rúnar Ísleifsson 5 vinn af 7.
2. Pétur Gíslason 4,5
3. Ármann Olgeirsson 4
4. Smári Sigurðsson 3,5
5. Hermann Aðalsteinsson 2,5
6. Sigurbjörn Ásmundsson 1
7. Árni Garðar Helgason 0,5
Vetrarstafi Goðans lýkur svo með lokaæfingunni að viku liðinni á Húsavík. H.A.