Rúnar Ísleifsson teflir á Akureyri.

Okkar maður, Rúnar Ísleifsson, hefur staðið í ströngu á Akureyri að undanförnu. Nú nýlega tók hann þátt í 15 mín, móti hjá S.A. og endaði þar í 7. sæti með 3 vinninga.

Hann tekur einnig þátt í Atskákmóti Akureyrar, sem stendur yfir þessa daganna.  Þegar 3 umferðum er lokið er Rúnar með 2 vinninga.  Áskell Örn kárason er efstur með full hús vinninga.  Andstæðingur Rúnars í 4 umferð á sunnudag verður hinn aldni Haukur Jónsson.      

Greint verður frá gengi Rúnars hér á blogginu.           H.A.