Skákæfing í kvöld á Húsavík.

Skákfélagið Goðinn verður með skákæfingu í kvöld á Húsavík.

Teflt verður í sal Framsýnar-stéttarfélags að Garðarsbraut 26 og hefst æfingin kl 20:30. Væntanlega verða tefldar 5-7 mín skákir, eða þá 15 mín skákir og þá 4. umf. monrad.

Búist er við góðri mætingu skákmanna í kvöld þar sem þó nokkrir hafa boðað komu sína sem ekki hafa teflt árum saman. Reikna má með að börn og unglingar úr Borgarhólsskóla mæti til leiks og auðvitað skákmenn, sem alltaf mæta á skákæfingar hjá félaginu.  H.A.