25.6.2011 kl. 01:01
Rúnar Sigurpálsson efstur á útiskákmóti Goðans í Vaglaskógi.
Rúnar Sigurpálsson (Mátar) varð efstur á útiskákmóti Goðans sem fram fór í Vaglaskógi í gærkvöld. Rúnar fékk 7 vinninga af 8 mögulegum og tapaði aðeins einni skák, fyrir Jóni Kr þorgeirssynin, sem varð í öðru sæti með 6,5 vinninga. Jakob Sævar Sigurðsson, Smári Sigurðsson og Hlynur Snær Viðarsson urðu jafnir í 3-5 sæti með 5 vinninga hver.
Alvarlegt tölvuvandamál kom upp eftir þrjá umferðir sem tafði mótið mikið og var því mótið stytt niður í 8 umferðir, en til stóð að tefla 11 umferðir.
Veðrið var þurrt og gott í Vaglaskógi, en ansi kalt var orðið í síðustu þremur umferðunum.
Þó fraus ekki.
Úrslit:
1. Rúnar Sigurpálsson Mátar 7 vinn af 8 mögulegum.
2. Jón kristinn Þorgeirsson SA 6,5
3-5 Jakob Sævar Sigurðsson Goðinn 5
3-5 Smári Sigurðsson Goðinn 5
3-5 Hlynur Snær Viðarsson Goðinn 5
6-7 Rúnar ísleifsson Goðinn 4,5
6-7 Bragi Pálmaon SA 4,5
8-11 Ármann Olgeirsson Goðinn 4
8-11 Sveinbjörn Sigurðsson SA 4
8-11 Wylie Wilson USA 4
8-11 Jón Magnússon SA 4
12-13 Hermann Aðalsteinsson Goðinn 3
12-13 þorgeir Jónsson SA 3
14-15 Sigurbjörn Ásmundsson Goðinn 2
14-15 Ketill Tryggvason Goðinn 2
16 Hjörtur Snær Jónsson SA 0,5
Myndir verða birtar á morgun.
Verslunin í Vaglaskógi gaf ís í brauði fyrir sigurvegarann, en Rúnar ánafnaði Jóni Kr ísinn. Jón Kr og fjölskylda fá ís í brauði næst þegar þau eiga leið um Vaglaskóg.