Skákfélagið Goðinn hefur verið endurvakið og var sú ráðstöfun sem hefur verið í bígerð um skeið, staðfest á aðalfundi hins endurvakta félags, sem vegna aðstæðna í samfélaginu fór fram á skype nú nýlega.

Goðahluti Skákfélagsins Hugins hefur þar með sagt skilið við Skákfélagið Huginn en 8 ár eru liðin frá stofnun þess félags, með sameiningu Goðans-Máta og Hellis 27. september 2013, sem hét GM-Hellir fyrsta starfsárið. Félagið tók síðan upp nafnið Skákfélagið Huginn 8. maí 2014. Samstarfið milli landshluta gekk vel og samfylgdin var góð og gefandi fyrir hvorn tveggja.

Skákfélagið Goðinn hefur þegar sótt um inngöngu í Skáksamband Íslands og búið er að stofna félagið í keppendaskrá Skáksambands Íslands. Nú eru 58 félagar skráðir í Skákfélagið Goðann og allt eru þetta skákmenn sem tilheyrðu Goðanum hér áður fyrr, fyrir allar sameiningar.

Ljóst er að engin félagsmanna hins ný endurvakta félags mun tefla í síðari hluta Íslandsmóts skákfélaga í maí með þessum gjörningi. Einnig lá fyrir að keppni í 3. og 4. deild hefur verið aflýst og þeir Goðahluta keppendur sem tefldu í 2. deild fyrir Huginn í fyrri hlutanum, geta ekki verið með í síðari hlutanum vegna tímasetningarinnar í maí.

Skákfélagið Goðinn stefnir hinsvegar á þátttöku í Íslandsmót Skákfélaga 4. deild í haust.

Þeir sem vilja ganga úr Goðanum í eitthvað annað félag, eða ganga til liðs við Goðann, geta gert það á hér á félagaskiptaformi Skáksambands Íslands.

Fréttir af aðalfundi/endurvakningarfundi Goðans

Til aðalfundar hins endurvakta félags voru mættir Hermann Aðalsteinsson, Sigurbjörn Ásmundsson, Smári Sigurðsson, Jakob Sævar Sigurðsson, Hilmar Freyr Birgisson og Hannibal Guðmundsson.

Ný þriggja manna stjórn var kjörin á fundinum en í henni eru, Hermann Aðalsteinsson formaður, Rúnar Ísleifsson gjaldkeri og Sigurbjörn Ásmundsson ritari.

Ný lög félagsins voru staðfest á fundinum og eru þau keimlík eldri lögum Goðans.

Fram kom á fundinum að hagnaður varð af starfsemi félagins á árinu 2020 og félagið ætti nokkuð fé í sjóði, enda ekki verið mikil starfsemi að undanförnu vegna covid.

Saga Skákfélagsins Goðans

Formlegur stofndagur Skákfélagsins Goðans var 15. mars árið 2005. Stofnfundurinn fór fram á veitingarhúsinu Fosshóli í Þingeyjarsveit, en þar höfðu skákmenn verið að hittast og tefla síðan árið 2004 án þess þá að stofna sérstakan félagsskap um það. Á þessum stofnfundi var kennimark félagsins samþykkt, sem við þekkjum svo vel, enda hlaut það felst atkvæði af þeim sem voru í boði. Hallur Birkir Reynisson skopmyndateiknari og skáld á Laugum hannaði merkið. Einn þekktasti foss landsins, Goðafoss, blasir við gestum veitingahússins á Fosshóli og bera nafn og merki félagsins þess glökkt vitni. Félagið fékk inngöngu í Skáksamband Íslands árið 2005.

Nánar um stofnun skákfélagsis Goðans.

Snemma í febrúar 2004 auglýsti Ármann Olgeirsson á Vatnsleysu í Hlupastelpunni eftir hvort einhverjir í Þingeyjarsveit hefðu áhuga á því að tefla. Í ljós kom að nokkrir höfðu áhuga fyrir því.
Þann 19 febrúar 2004 hittust 3 skákmenn á Fosshóli og héldu okkar fyrsta formlega skákkvöld, en það voru þeir Ármann Olgeirsson, Hallur Birkir Reynisson og Hermann Aðalsteinsson.
Viku seinna hittust 5 skákmenn á Stórutjörnum, þessir þrír áðurnefndu auk Baldurs Daníelssonar og Jóhanns Sigurðssonar.  Alls voru haldnar 8 skákæfingar þennan vetur með mis mikilli mætingu, eða frá 4 uppí 8 manns.
Vetrarstarfinu lauk svo síðan með 2ja kvölda skákmóti sem 8 skákmenn tóku þátt í á Fosshóli.  þar var krýndur okkar fyrsti skákmeistari sem var Baldur Daníelsson. Hlaut hann 6,5 vinninga af 7 mögulegum. Ármann Olgeirsson varð annar með 5,5 vinninga og Jóhann Sigurðsson þriðji með 5 vinninga. Baldur fékk farandbikar að launum til varðveislu næsta árið, sem Ármann Olgeirsson gaf í tilefni dagsins. Þetta mót fór fram 25-26 apríl 2004. Umhugsunartíminn var 20 mín á mann. Mótið markaði lok vetrarstarfsins.
11. október sama ár hófst skákstarfið á nýjan leik. Fyrirkomulagið var með svipuðu sniði og veturinn áður, nema að nú var teflt annan hvern þriðjudag.  Skákæfingarnar urðu 13 talsins. Nokkrir nýjir skákmenn bættust í hópinn, þegar á leið, þó svo að aldrei voru fleiri en 8 á hverri æfingu.
Snemma árs 2005 var stofnað formlegt skákfélag og 15 mars var kosin þriggja manna stjórn. Kosningu hlutu: Ármann Olgeirsson 5 atkvæði, Hermann Aðalsteinssson,5 atkvæði og Hallur B Reynisson 4 atkvæði.  Aðrir sem fengu atkvæði voru Ketill Tryggvason 2 atkvæði, Jóhann Sigurðsson og Hólmfríður Eiríksdóttir 1 atkvæði hvort.  Ákveðið var að stjórn skipti með sér verkum og væri hún kjörin til eins árs.
29 mars var haldinn stuttur fundur til að ákveða nafn á það. Fyrir valinu varð skákfélagið Goðinn. Stjórn hafði þá skipt með sér verkum , þannig að Hermann Aðalsteisson varð formaður, Ármann Olgeirsson ritari og Hallur B Reynisson gjaldkeri. Hófst þá skráning í félagið og skráðu sig 12 stofnfélagar í félagið..
Sótt var um aðild að skáksambandi Íslands og stefnt á að taka þátt í Íslandsmóti skákfélaga 4. deild vetruinn 2005-6.
Vetrarstarfinu lauk síðan með skákmóti á Fosshóli 12 og 19 apríl. Teflt var eftir monrad-kerfi 5 umferðir með 30 mín umhugsunartíma á mann. Að loknum 5 umferðum voru 3 keppendur efstir og jafnir með 4 vinninga,  Ármann, Jóhann og Hallur. þeir kepptu sín á milli um efsta sætið í hrað- skákum en ekki fengust úrslit úr því heldur. Þá voru reiknuð út stig og eftir þann reikning stóð Ármann Olgeirsson uppi sem sigurvegari. Jóhann og Hallur deildu öðru sætinu. Ármann fékk því bikrarinn til varðveislu næsta árið. 
( Formáli úr fundargerðabók skákfélagsins Goðans.)  Hermann Aðalsteinsson.