25.10.2013 kl. 21:53
Skákþing Garðabæjar hófst í gær
Skákþing Garðabæjar hófst í gær. Afar góð þátttaka er á mótinu en 48 keppendur taka þátt sem er metþátttaka. Það fyrirkomulag Garðbæinga að skipta mótinu í tvo flokka og tefla aðeins einu sinni í viku virðist hafa gefist afar vel.
Fimm félagmenn GM-Hellis taka þátt í mótinu og tefla þrír þeirra í A-flokki. Felix Steinþórsson gerði jafntefli í 1.umferð en Óskar Víkingur Davíðsson og Jón Eggert Hallsson töpuðu sínum skákum gegn stigahærri andstæðingum.
Brynjar Haraldsson og Halldór Atli Kristjánsson tefla í B-flokki og töpuðu þeir báðir sínum skákum í 1. umferð
Pörun 2. umferðar liggur ekki fyrir.
