Staða efstu manna á skákþingi Hugins á Húsavík breyttist ekkert eftir skákir 4. umferðar sem fram fór í gær. Fjórir efstu menn áttust við og enduðu báðar skákirnar með jafntefli.  Í hinum tveimur viðureignunum áttust Ármann Olgeirsson og Sigurbjörn Ásmundsson við og Hlynur Snær Viðarsson tefldi við Sam Rees. Ármann og Hlynur höfðu betur.

meistaramot_logo

Skák Jóns Aðalsteins Hermannssonar og Ásgeirs Inga Unnsteinnssonar var tefld á laugardag og lauk henni með sigri Jóns. Skák Ævars Ákasonar og Hermanns Aðalsteinssonar fer fram í kvöld. Úrslit í þeirri skák hefur ekki áhrif á stöðu efstu manna. Að henni lokinni verður pörun 5. umferðar birt.

Smári Sigurðsson, Rúnar Ísleifsson, Hjörleifur Halldórsson og Jakob Sævar Sigurðsson eru efstir á mótinu með 3 vinninga hver.

Mótið á chess-results