Tvær umferðir voru tefldar á Dublin International open í dag. Allir Íslensku keppendurnir hafa náð í amk einn vinning. Þeir feðgar Smári Sigurðsson og Kristján Ingi Smárason hafa 1,5 vinninga eftir þrjár umferðir og mætast í 4 umferð á morgun. Unnar Ingvarsson og Adam Ferenc Gulyas hafa einn vinninga hvor. Stöðunar og pörun má sjá á chess-results.
Erlingur Jensson hefur 1,5 vinninga í 40+ flokknum og Hermann Aðalsteinsson hefur einn vinninga eftir daginn. Pörun og stöðuna í flokknum má skoða á chess-results
Lárus H Bjarnason hefur 1,5 vinninga eftir daginn en Lárus Sólberg Guðjónsson hefur tvo vinninga eftir góðan sigur í seinni umferðinni í dag. Pörun og staðan á chess-results.