Smári Sigurðsson. Mynd: Tómas Tandri Jóhannsson
Smári Sigurðsson varð efstur á skákæfingu sem fram fór í Túni á Húsavík sl. mánudagskvöld. Smári landaði 4 vinningum af 5 mögulegum. Kristján Ingi Smárason og Hilmar Freyr Birgisson urðu jafnir í 2-3 sæti með 3,5 vinninga. Tefld var einföld umferð og umhugsunartímnn var 10 mín.
Lokastaðan.
Smári Sigurðsson 4
Kristján Ingi Smárason 3,5
Hilmar Freyr Birgisson 3,5
Ádám Gulyás 3
Sigurbjörn Ásmundsson 1
Guðjón Ingi Eide Sævarsson 0
Næsta skákæfing verður mánudagskvöldið 5. október í Túni.
