Frá skákæfingu í Túni
Smári Sigurðsson og Hermann Aðalsteinsson urðu efstir og jafnir með 4 vinninga af 5 mögulegum á skákæfingu sem fram fór í Túni sl. mándagskvöld. Kristján Ingi Smárason varð þriðji með 3 vinninga. Hilmar Freyr Birgisson og Ádám Gulýás fengu 2 vinninga og Sigurbjörn Ásmundsson 0 vinning.
Tímamörk voru 7+3 og allir tefldu við alla einfalda umferð. Næsta skákæfing verður mánudagskvöldið 20 apríl
