Skólamótið í Lundi
Skákfélagið Goðinn stóð fyrir skólamóti í skák í Lundi sl. þriðjudag. Fjallað er um það mót á vef Öxarfjarðarskóla og lesa má umfjöllunina hér fyrir neðan.
Í dag var haldin skákkeppni sem er lokahnykkurinn á námskeiði vetrarins sem var í höndum Skákfélagsins Goðans. Keppnin fór fram matsal skólans og tóku allir nemendur þátt.
Verðlaunaafhending fór fram utandyra í sól og blíðu og voru veitt viðurkenningarskjöl í eldri og yngri flokkum.
Úrslitin urðu eftirfarandi:
Eldri flokkur:
1. sæti Skúli Karl Bjarkason
2.sæti Hugi Christophsson
3.sæti Björn Grétar Ríkharðsson
Yngri flokkur:
1. sæti Sigursveinn Jónasson
2. sæti Stefán Þór Elvarsson
3. sæti Heiðný Jónasdóttir
Við óskum þeim til hamingju!
Fleiri myndir á skoða á vef skólans


