Stefán Bergsson (2098), Sævar Bjarnason (2095) og Davíð Kjartansson (2331) eru efstir og jafnir með fullt hús að lokinni þriðju umferð Meistaramóts Hugins (suðursvæði) sem fram fór í kvöld. Þrátt fyrir margar spennandi og skemmtilegar viðureignir í kvöld þá fór það samt svo að hinir stigahærri unnu þá stigalægri, að því undanskyldu að Óðinn Örn Jakobsen (stigalaus) vann Björgvin Kristbergsson (1181).
Fjórða umferð fer fram nk. mánudagskvöld. Þá mætast Davíð og Stefán en Sævar teflir við Jón Eggert Hallsson (1632).
[slideshow_deploy id=’2297′]