IMG_2138Stefán Bergsson (2098), Sævar Bjarnason (2095) og Davíð Kjartansson (2331) eru efstir og jafnir með fullt hús að lokinni þriðju umferð Meistaramóts Hugins (suðursvæði) sem fram fór í kvöld. Þrátt fyrir margar spennandi og skemmtilegar viðureignir í  kvöld þá fór það samt svo að hinir stigahærri unnu þá stigalægri, að því undanskyldu að Óðinn Örn Jakobsen (stigalaus) vann Björgvin Kristbergsson (1181).IMG_2130

Fjórða umferð fer fram nk. mánudagskvöld. Þá mætast Davíð og Stefán en Sævar teflir við Jón Eggert Hallsson (1632).

 

[slideshow_deploy id=’2297′]