29.5.2011 kl. 17:36
Sumarskákmót Goðans í Vaglaskógi 24 júní.
Sumarskákmót Goðans verður haldið við verslunina í Vaglaskógi föstudaginn 24 júní og hefst það kl 21.00. Mótið er útiskákmót og verður teflt á pallinum framan við verslunina.
Verslunin verður opin þetta kvöld og geta keppendur fengið sér mæru og drykk á meðan mótið stendur yfir.
Líkleg tímamörk verða 5-7 mín á mann og líklegt er að umferðirnar verði ekki fleiri en 11.
Við bjóðum nágrönnum okkar í SA velkomna yfir í Vaglaskóg til þátttöku í mótinu, en ekkert mótsgjald er og engin verðlaun verða veitt. Mótið er einungis til gamans og væntir stjórn Goðans þess að félagsmenn fjölmenni til keppni og vonandi geta Akureyringar litið við í einni af perlum okkar Þingeyinga sem Vaglagskógur er svo sannarlega.
Gamla bogabrúin yfir Fnjóská.
Að afloknu móti er ætlunin að taka hópmynd af keppendum á gömlu bogabrúnni yfir Fnjóská í tilefni dagsins en bogabrú þessi var, samkvæmt öruggum heimildum, ein elsta og ef ekki stærsta brú slíkrar gerðar á norðurlöndunum þegar hún var byggð. Er því um frekar merkilegt mannvirki að ræða.
Mótið verður auglýst nánar þegar nær dregur.
