Þrír efstir og jafnir á skákæfingu.

Heimir Bessason, Ævar Ákason og Sigurbjörn Ásmundsson urðu jafnir með 2 vinninga hver á skákæfingu kvöldsins er fram fór á Laugum. Einungis þessir þrír mættu á æfinguna og skiptu vinningunum bróðurlega á milli sín.
Tefldar voru tvær umferðir og var umhugsunartíma 15 mín á mann.

Næsta skákkvöld verður á Húsavík að viku liðinni, en þá er á dagskrá stúdering gegnum Skype.