Unglingameistaramót Hugins 2016 (S) hefst mánudaginn 14. nóvember n.k. kl. 16.30 þ.e. nokkru fyrr heldur en venjulegar mánudagsæfingar. Mótinu verður svo fram haldið þriðjudaginn 15. nóvember n.k. kl. 16.30. Tefldar verða 7 umferðir eftir Svissnesku kerfi. Mótið verður reiknað til atskákstiga. Fyrri keppnisdaginn verða fjórar skákir og þrjár þann seinni. Umhugsunartími á hverja skák er 15 mínútur á skák + 5 sekúndur á leik.
Mótið er opið öllum 15 ára og yngri í grunnskóla en titilinn sjálfan getur aðeins félagsmaður í Huginn unnið. Á meðan á mótinu stendur falla venjulegar barna- og unglingaæfingar niður. Næsta barna- og unglingaæfing eftir unglingameistaramótið verður mánudaginn 21. nóvember n.k. Keppnisstaður er Álfabakki 14a í Mjódd (inngangur milli Subway og Fröken Júlíu) og er salur félagsins á þriðju hæð. Engin þátttökugjöld. Núverandi unglingameistari Hugins er Óskar Víkingur Davíðsson.
Umferðatafla:
1.-4. umferð: Mánudaginn 14. nóvember kl. 16.30
5.-7. umferð: Þriðjudaginn 15. nóvember kl. 16.30
Verðlaun:
- Unglingameistari Hugins fær farandbikar til varðveislu í eitt ár.
- Þrír efstu fá verðlaunagripi til eignar.
- Allir keppendur fá skákbók.
- Þrír efstu 12 ára og yngri fá verðlaunapening.
- Stúlknameistari Hugins fær verlaunagrip til eignar.
