14.7.2010 kl. 16:36
Útifjöltefli Goðans.
Útifjöltefli á vegum Goðans verður haldið föstudaginn 23 Júlí á Húsavík. Fjölteflið fer fram á Pallinum á Kirkjutröppunum framan við Húsavíkurkirkju og hefst kl 15:00.
Fjölteflið er partur af bæjarhátíð Húsvíkinga sem kallast Mærudagar.
Áskell Örn Kárason.
Þar geta þeir sem vilja att kappi við Norðulandsmeistarann í skák 2010 sem er Áskell Örn Kárason.
Sighvatur Karlsson stjórnar fjölteflinu. Fjölteflið er öllum opið og ekkert kostar að vera með í því.
