Víkingaklúbburinn hafði betur gegn Skákfélagi Íslands í viðureign félaganna sem fram fór í gærkveldi í húsnæði Skákskólans. Lokatölur urðu 38-34 og var viðureignin afar jöfn og spennandi. Stefán Þór var bestur Íslandsmeistaranna en Kristján Örn hafði mjög gaman að þessu og stóð sig best Skákfélagsmanna.
Besti árangur Víkingaklúbbsins
- Stefán Þór Sigurjónsson 10 v. af 12
- Gunnar Freyr Rúnarsson 9 v. af 12
- Ólafur B. Þórsson 7 v. af 12
Besti árangur Skákfélagsmanna
- Kristján Örn Elíasson 7½ v. af 12
- Guðmundur Kristinn Lee 6½ v. af 12
- Birkir Karl Sigurðsson 5½ v. af 12
Víkingaklúbburinn mætir Skákfélaginu Hugin í átta liða úrslitum keppninnar.