Víkingaklúbburinn hafði betur gegn Skákfélagi Íslands í viðureign félaganna sem fram fór í gærkveldi í húsnæði Skákskólans. Lokatölur urðu 38-34 og var viðureignin afar jöfn og spennandi. Stefán Þór var bestur Íslandsmeistaranna en Kristján Örn hafði mjög gaman að þessu og stóð sig best Skákfélagsmanna.

Besti árangur Víkingaklúbbsins

  • Stefán Þór Sigurjónsson 10 v. af 12
  • Gunnar Freyr Rúnarsson 9 v. af 12
  • Ólafur B. Þórsson 7 v. af 12

Besti árangur Skákfélagsmanna

  • Kristján Örn Elíasson 7½ v. af 12
  • Guðmundur Kristinn Lee 6½ v. af 12
  • Birkir Karl Sigurðsson 5½ v. af 12

Víkingaklúbburinn mætir Skákfélaginu Hugin í átta liða úrslitum keppninnar.