Viktor Már Guðmundsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Elfar Ingi Þorsteinsson voru allir jafnir og efstir með 5v af sex mögulegum á æfingu 12. febrúar sl. Þeir voru einnig jafnir að stigum, leistu dæmi æfingarinnar rétt og unnu og töpuðu gegn hvor öðrum á víxl svo ekki var skilið á milli þeirra nema með hlutkesti. Þar var Viktor hlutskarpastur og fékk fyrsta sættið, Óttar Örn varð annar og Elfar þriðji.

Á æfingu 19. febrúar  sl. var Rayan Sharifa efstur með 4,5v af fimm mögulegum. Jafnteflið kom í annari umferð gegn Batel. Í öðru sæti varð Viktor Már Guðmundsson með 4v. Síðan komu jöfn með 3v. Batel Goitom Haile, Frank Gerritsen og Andri Hrannar Elvarsson með 3v. Hér var Batel efst á stigum með hálfu stigi meira en Frank og hlaut hún þriðja sætið. Ekkert dæmi var lagt fyrir á þessari æfingu en þemaskák var í þremur umferðum  og héldum við áfram með c3 afbrigðið í sikileyjarvörn þegar svartur svarar með 2….Rf6.

Í þessum æfingum tóku þátt: Viktor Már Guðmundsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Elfar Ingi Þorsteinsson, Ívar Örn Lúðvíksson, Árni Benediktsson, Kiril Alexander Igorsson, Rayan Sharifa, Batel Goitom Haile, Frank Gerritsen, Andri Hrannar Elvarsson, Brynjólfur Yan Brynjólfsson og Witbet Goitom Haile.

Næsta æfing verður mánudaginn 26. febrúar 2018 og hefst kl. 17.15. Sú æfing verður jafnframt forkeppni fyrir Reykjavik Barnabliz en úrslit þeirrar keppni fer fram í Hörpu meðan á Reykjavíkurskákmótinu stendur. Æfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengið er inn milli Subway og Lyfjaval í Mjódd og salurinn er á þriðju hæð.