Jólapakkaskákmót Hugins verður haldið laugardaginn 19. desember nk. í Ráðhúsi Reykjavíkur. Mótið hefst kl. 13 og er ókeypis á mótið. Mótið er fyrir börn og unglinga og fer nú fram í 18. skipti en það var fyrst haldið fyrir jólin 1996. Síðan hefur það verið haldið nánast á hverju ári og hefur alltaf verið eitt fjölmennasta skákmót ársins.

Keppt verður í allt að 6 flokkum:

  • Flokki fæddra 2000-2002
  • Flokki fæddra 2003-2004
  • Flokki fæddra 2005-2006
  • Flokki fæddra 2007-2008
  • Flokki fæddra 2009 síðar
  • Peðaskák fyrir þau yngstu

Tefldar verða 5 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bæði drengi og stúlkur. Auk þess verður happdrætti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig.

Í verðlaun verða meðal annars: bækur, bakpokar, bíómiðar, hamborgarar, mynddiskar, pússluspil, töfl og fleira. Í lokinn verður happdrætti þar sem m.a. verður dreginn út Bluetooth hátalari frá Sjónvarpsmiðstöðinn og áskrift að Stöð 2. Allir þátttakendur fá svo við brottför góðgæti frá Góu og Andrésblað.

Skráning á mótið fer fram á Skák.is (kassinn efst) og á Skákhuganum.

Yfirlit yfir þegar skráða keppendur má finna hér.