Helgi Áss Grétarsson sem tefldi fyrir ÍTR sigraði örugglega með fullu húsi 7v af sjö mögulegum á Mjóddarmótinu sem fram fór laugardaginn 7. júlí sl. í göngugötunni í Mjódd. Annar var Vignir Vatnar Stefánsson með 5,5v sem tefldi fyrir Arion banki. Síðan komu jafnir í 3. – 4. sæti með 4,5 vinninga þeir Einar Valdimarsson sem tefldi fyrir Hjá Dóra og Guðmundur Kjartansson sem tefldi fyrir Landsbankann. Það var skipt um sett í verðlaunasætum frá árinu áður fyrir utan að Vignir Vatnar vann til verðlauna á báðum mótunum. Eins og í fyrra var einn erlendur keppandi  Samuel Sepesi sem tefldi fyrir Nettó í Mjódd og gekk vel. Samuel sem er frá Slóvakíu dvelur hér á landi fram í september og hefur áhuga á því að tefla á meðan.

Erfitt var að finna dag fyrir Mjóddarmótið að þessu sinni vegna Íslandsmótsins í skák og HM í fótbolta. Laugardagur er keppnisdagur á HM og var mótið því  fært inn í júli þegar leikjum á HM ar tekið að fækka og taflið byrjað það snemma að þáttakendur kæmist heim fyrir leik dagsins sem að þessu sinni var milli Svía og Englendinga. Það tókst að mestu þótt í þessu móti hafi þurft að notast við gömlu Monradspjöldi. Erla Hlín Hjálmarsdóttir sem var skákstjóri í mótinu raðaði þeim eins og hraðasta tölva svo sá hluti gekk hratt og vel fyrir sig. Keppendur lögði sig líka vel fram og hafa aldrei fyrr verið jafn fljótir að fylla út Monradspjöld og skila þeim inn.

Skákfélagið Huginn þakkar keppendum fyrir þátttökuna og fyrirtækjunum fyrir þeirra framlag til mótsins.

Lokastaðan á Mjóddarmótinu:

Röð Nafn Stig Fyrirtæki Röð BH.
1 Helgi Áss Grétarsson 2513 ÍTR 7 28½
2 Vignir Vatnar Stefánsson 2292 Arion banki 30½
3 Einar Valdimarsson 1904 Hjá Dóra 5 29½
4 Guðmundur Kjartansson 2443 Landsbankinn 5 27½
5 Þór Valtýsson 1955 Efling stéttarfélag 29
6 Bragi Halldórsson 2135 Íslandsbanki 28½
7 Eiríkur K. Björnsson 1939 GM Einarsson múrarameistari 4 32
8 Samuel Sepesi 2079 Nettó í Mjódd 4 31
9 Gauti Páll Jónsson 2033 Frú Sigurlaug 4 25½
10 Jón Úlfljótsson 1742 Ökuskólinn í Mjódd 4 24½
11 Óskar Víkingur Davíðsson 1812 Valitor 28
12 Guðni Stefán Pétursson 2133 Bakarameistarinn 25½
13 Birkir Karl Sigurðsson 1934 Dominos 25
14 Vigfús Vigfússon 1945 3 25
15 Lárus H Bjarnason 1507 Suzuki bílar 3 22½
16 Hjálmar Sigurvaldason 1405 Lyfjaval í Mjódd 3 22
17 Gunnar Nikulásson 1691 BV 60 3 21½
18 Björn Brynjúlfur Björnsson 0 3 16
19 Árni Ólafsson 1335 Íslandspóstur 21½
20 Ágúst Már Þórðarson 0 20½
21 Finnur Kr. Finnsson 1313 16
22 Batel Goitom Haile 1306 Sorpa 2 22½
23 Pétur Jóhannesson 1314 1 18
24 Arnar Freyr Dagsson 0 ½ 17½

 

Lokastaðan í chess-results:

 

[dt_divider style=”thick” /]

Myndagallerí