Framsýnarmótið í skák 2016
Verður haldið í Framsýnarsalnum að Garðarsbraut 26 á Húsavík helgina 11-13 nóvember nk.
Tefldar verða 7 umferðir alls, fyrstu fjórar með atksákartímamörkum (25 mín) en þrjár síðari skákirnar með 90 mín + 30 sek/leik.
Þátttökugjald 2000 kr en 1000 kr fyrir 16 ára og yngri.
Dagskrá: ATH BREYTING FRÁ ÁÐUR AUGLÝSTRI DAGSKRÁ !
-
Föstudagur 11. nóvember kl 20:00 1. umferð
- Föstudagur 11. nóvember kl 21:00 2. umferð
- Föstudagur 11. nóvember kl 22:00 3. umferð
- Föstudagur 11. nóvember kl 23:00 4. umferð
- Laugardagur 12. nóvember kl 8:30 5. umferð
- Laugardagur 12. nóvember kl 13:00 6. umferð
- Sunnudagur 13. nóvember kl 10:30 7. umferð
Mótið verður reiknað til Fide-skákstiga, Fide-atskákstiga og Íslenskra skákstiga.
Skráning.
Væntanlegir keppendur geta skráð sig til leiks á þar til gerðu skráningarformi sem er hér til vinstri á vefnum Skákhuginn.is og einnig á skák.is Hægt verður að skrá sig til keppni fram til kl 19:30 á föstudag, eða 30 mín áður en mótið hefst.
Verðlaun.
Veittir verða eignarbikarar í verðlaun handa þremur efstu af félagsmönnum Hugins og einnig fyrir þrjá efstu utanfélagsmenn. Einnig verða sérstök verðlaun veitt fyrir þrjá efstu í flokki 16 ára og yngri.
Fyrirtækið Eflir almannatengsl, hefur ákveðið að veita sérstök verðlaun á Framsýnarmótinu 2016 fyrir mestu stigabætinguna.
Gisting.
Á Húsavík eru næstum endalausir möguleikar á gistingu. Mótshaldarar vilja þó vekja sérstaka athygli á því að hægt er að fá gistingu á Fosshótel Húsavík á mjög hagstæðu verði. Hótelið er ný standsett og glæsilegt. Þar eru 110 herbergi, glæsilegur lobbý-bar og þar verður hægt að horfa á leik Íslands og Króatíu á laugardeginum kl 17:00.
Skákstjóri verður Ingibjörg Edda Birgisdóttir