Framsýn

Framsýnarmótið í skák 2016

Verður haldið í Framsýnarsalnum að Garðarsbraut 26 á Húsavík helgina 11-13 nóvember nk.

Tefldar verða 7 umferðir alls, fyrstu fjórar með atksákartímamörkum (25 mín) en þrjár síðari skákirnar með 90 mín + 30 sek/leik.

Þátttökugjald 2000 kr en 1000 kr fyrir 16 ára og yngri.

Dagskrá: ATH BREYTING FRÁ ÁÐUR AUGLÝSTRI DAGSKRÁ !

  • Framsýnarhúsið á Húsavík
    Framsýnarhúsið á Húsavík

    Föstudagur 11. nóvember kl 20:00 1. umferð

  • Föstudagur 11. nóvember kl 21:00 2. umferð
  • Föstudagur 11. nóvember kl 22:00 3. umferð
  • Föstudagur 11. nóvember kl 23:00 4. umferð
  • Laugardagur 12. nóvember kl 8:30 5. umferð
  • Laugardagur 12. nóvember kl 13:00 6. umferð
  • Sunnudagur 13. nóvember kl 10:30 7. umferð

Mótið verður reiknað til Fide-skákstiga, Fide-atskákstiga og Íslenskra skákstiga.

Skráning.

Væntanlegir keppendur geta skráð sig til leiks á þar til gerðu skráningarformi sem er hér til vinstri á vefnum Skákhuginn.is og einnig á skák.is Hægt verður að skrá sig til keppni fram til kl 19:30 á föstudag, eða 30 mín áður en mótið hefst.

Verðlaun.

Veittir verða eignarbikarar í verðlaun handa þremur efstu af félagsmönnum Hugins og einnig fyrir þrjá efstu utanfélagsmenn. Einnig verða sérstök verðlaun veitt fyrir þrjá efstu í flokki 16 ára og yngri.
Fyrirtækið Eflir almannatengsl, hefur ákveðið að veita sérstök verðlaun á Framsýnarmótinu 2016 fyrir mestu stigabætinguna.

Gisting.

Á Húsavík eru næstum endalausir möguleikar á gistingu. Mótshaldarar vilja þó vekja sérstaka athygli á því að hægt er að fá gistingu á Fosshótel Húsavík á mjög hagstæðu verði. Hótelið er ný standsett og glæsilegt. Þar eru 110 herbergi, glæsilegur lobbý-bar og þar verður hægt að horfa á leik Íslands og Króatíu á laugardeginum kl 17:00.

Skákstjóri verður Ingibjörg Edda Birgisdóttir

Skráðir keppendur