Hraðskákmót Hugins í Mjóddinni verður haldið mánudaginn 7. nóvember nk. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a og hefst taflið kl. 20. Tefldar verða 7 umferðir tvöföld með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á hvern leik.
Mótið verður reiknað til hraðskákstiga. Heildarverðlaun á mótinu eru kr. 20.000.
Núverandi hraðskákmeistari Hugins er Hjörvar Steinn Grétarsson. Þetta er í tuttugasta of fyrsta sinn sem mótið fer fram. Björn Þorfinnsson og Davíð Ólafsson hafa hampað titlinum oftast eða fjórum sinnum.
Verðlaun skiptast svo:
- 10.000 kr.
- 6.000 kr.
- 4.000 kr.
Þátttökugjöld eru kr. 400 fyrir félagsmenn en kr. 600 fyrir aðra. Fyrir unglinga í Huginn eru þau kr. 300 en kr. 400 fyrir aðra.