24.4.2009 kl. 12:13
Héraðsmót HSÞ í skák 16 ára og yngri.
Héraðsmót HSÞ í skák fyrir 16 ára og yngri verður haldið í Litlulaugaskóla í Reykjadal sunnudaginn 26 apríl og hefst það kl 13:00. Mótslok eru kl 16:00.
Keppt verður í þremur aldursflokkum og stúlknaflokki. –
9 ára og yngri (1-3 bekkur )
10 -13 ára og yngri (4-7 bekkur)
14 -16 ára og yngri (8-10 bekkur)
-Stúlknaflokkur
Tefldar verða 7 umferðir eftir monrad-kerfi þar sem umhugsunartíminn verður 10 mín á keppanda í hverri skák. Veitt verða verðlaun fyrir þrjá efstu í öllum flokkum auk þess sem vinninga hæsti keppandinn fær farandbikar að launum og titilinn Héraðsmeistari HSÞ 16 ára og yngri !
Keppnisgjald er kr 500. Keppendur þurfa helst að skrái sig fyrir kl 12:00 á keppnisdegi.
Tekið er við skráningum í síma 4643187 (8213187) Hermann. Einnig er hægt að senda skráningu á netfangið lyngbrekka@magnavik.is
