Héraðsmót HSÞ 2024 í skák, verður haldið í Ýdölum Aðaldal laugardaginn 16. Mars kl 13:00. Mótið verður 7 umferðir og tímamörk verða 10 mín + 5 sek í viðbótartíma á hvern leik. Mótið verður teflt í A og B-flokki. Áætluð mótlok er um kl. 17:30.

A- flokkurinn verður reiknað til atskákstiga hjá FIDE og er hugsaður fyrir þá sem hafa skákstig þann 1. Mars 2024. Skrá sig til leiks í A-flokkinn

B-flokkurinn er hugsaður fyrir þá sem eru án skákstiga 1. mars 2024 og alla aldurshópa. Öllum er þó frjálst að skrá sig til keppni í  A-flokkinn þó þeir uppfylli skilyrði til að taka þátt í B-flokknum. Skrá sig til leiks í B-flokkinn

Skráning telst ekki gild fyrr en staðfesting hefur borist á greiðslu á þátttökugjaldi.
Skráðir keppendur í A-flokkinn. 
Skráðir keppendur í B-flokkinn.

Mótið er opið öllum áhugasömum en aðeins þeir sem eru félagsmenn í einhverju aðildarfélagi HSÞ eða Skákfélaginu Goðanum, geta unnið til verðlauna. Í verðlaun verða ma. Gjafabréf í Skákbúðina, auk hefðbundina verðlauna. Þátttökugjald verður 2.000 krónur á mann í A-flokkinn en 1500 Kr á mann í B-flokkinn og það greiðist við skráningu í mótið rafrænt. Hægt er að greiða með debit eða kredid korti.

Skráningu í mótið verður lokað kl 12:00 á keppnisdegi. Hægt verður þó að staðgreiða keppnisgjaldið á staðnum, ef viðkomandi greiðir rétta upphæð með seðlum. Ekki verður posi á staðnum.

Skákfélagið Goðinn.