Ný kennimerki Hugins
Hraðkvöld Hugins verður mánudaginn 30. maí nk.  og hefst taflið kl. 20:00. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 5 mínútur + 3 sekúndur á hvern leik. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Nú fer að síga á seinni hlutann á þessum skákæfingum en auk þessarar æfingar er aðeins æfingin 6. júní eftir.
Sigurvegarinn á hraðkvöldinu fær í verðlaun máltíð fyrir einn á Saffran eða pizzu frá Dominos Einnig verður dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fær sama val. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu.
Þátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).