Huginn Íslandsmeistari 2016

Skákfélagið Huginn sigraði á Íslandsmóti skákfélaga sem lauk í Rimaskóla sl. laugardag. Huginn vann 5-3 sigur á a-sveit Taflfélags Reykjavíkur í afar spennandi viðureign í næstu síðustu umferð og var þar með komin með gott forskot fyrir lokaumferðina en í henni vann a-sveit Hugins öruggan 7-1 sigur á b-sveit Taflfélags Reykjavíkur.

Huginn Íslandsmeistari 2016
Huginn Íslandsmeistari 2016

B-sveitin náði mjög góðum árangri en sveitin endaði í 5. sæti í 1. deildinni með 34 vinninga með hélt örugglega sæti sínu í deild þeirra bestu.

Lokastaðan:

1. Skákfélagið Huginn 57½ v.
2. Taflfélag Reykjavíkur 54½ v.
3. Skákdeild Fjölnis 45 v.
4. Skákfélag Akureyrar 39 v.
5. Skákfélagið Huginn b-sveit 34 v.
6. Víkingaklúbburinn 32 v.
7. Taflfélag Bolungarvíkur 31½ v. (4 stig)
8. Skákdeild KR 24½ v.
9. Taflfélag Reykjavíkur b-sveit 23 v.
10. Skákfélag Akureyrar b-sveit 19 v.

 

Mótstöflu má finna á Chess-Results.

Mótinu verða gerð nánari skil síðar.

Sigri fagnað
Sigri fagnað