Skákfélagið Huginn er í forystu að lokinni fyrstu umferð Íslandsmóts skákfélaga sem fram fór í gærkvöld í Rimaskóla. Huginn vann 7-1 sigur á eigin b-sveit. Fjölnismenn eru í öðru sæti eftir 5,5-2,5 sigur á Skákfélagi Akureyrar. Taflfélag Reykjavíkur, Taflfélag Bolungarvíkur og Skákfélag Íslands unnu öll sínar viðureignir 5-3.

hugin_stort4litjpg

Úrslit fyrstu umferðar:

No. Team Team Res. : Res.
1   Taflfélag Vestmannaeyja   Taflfélag Reykjavíkur 3 : 5
2   Víkingaklúbburinn   Taflfélag Bolungarvíkur 3 : 5
3   Skákfélagð Huginn a-sveit   Skákfélagið Huginn b-sveit 7 : 1
4   Skákfélag Íslands   Skákfélag Reykjanesbæjar 5 : 3
5   Skákdeild Fjölnis   Skákfélag Akureyrar :

Sitthvað var óvænt úrslit og má þar helst nefna sigur Hilmis Freys Heimissonar (1826), b-sveit Hugins, sem vann Kristján Eðvarðsson (2167). Öll einstaklingsúrslit fyrstu umferðar má finna á Chess-Results.

Önnur umferð fer fram í kvöld og hefst kl. 20. Þá mætast:

No. Team Team Res. : Res.
1   Taflfélag Reykjavíkur   Skákfélag Akureyrar   :  
2   Skákfélag Reykjanesbæjar   Skákdeild Fjölnis   :  
3   Skákfélagið Huginn b-sveit   Skákfélag Íslands   :  
4   Taflfélag Bolungarvíkur   Skákfélagð Huginn a-sveit   :  
5   Taflfélag Vestmannaeyja   Víkingaklúbburinn   :

 

Í dag hefjast deildir 2-4.