TR vann sigur á Huginn 38-34 í úrslitum hraðskákkeppni taflfélaga sem lauk nú í kvöld. Björn Þorfinnsson var í miklum ham og landaði hann 9 vinningum fyrir TR-inga á 5. borði. Hannes Hlífar Stefánsson fékk 8,5 vinninga og Arnar Gunnarsson var með 7 vinninga.

Bestir Huginsmanna voru þeir Hjörvar Steinn Grétarsson, sem fékk 8,5 vinninga, Stefán Kristjánsson sem fékk 7,5 og Þröstur Þórhallsson landaði 7 vinningum.

skákhuginn.is óskar TR til hamingju með titilinn.

Sjá nánar á chess-results