19.10.2013 kl. 23:02
Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga fór fram um nýliðna helgi. Hið ný sameinaða félag Skákfélagið GM-Hellir tefldi fram 9 keppnisliðum í mótinu, tveimur í 1. deild, einu í 2. deild og svo þremur liðum í 3 og 4. deild. Yfirliðsstjórn var í öruggum höndum þeirra Jóns Þorvaldssonar, Vigfúsar Vigfússonar og Hermanns Aðalsteinssonar og gekk öll skipulagning vel. Hér fyrir neðan eru birtir pistlar um mótið og skrifar Magnús Teitsson um 1 deild. Vigfús Vigfússon skrifar um 3. deildina og Hermann Aðalsteinsson skrifar pistil um 2. deild og 4. deild.
Stórmeistararnir Gawain Maroroa Jones, Robin Van Kampen og Þröstur Þórhallsson leiddu A-sveit GM-Hellis.
Að kvöldi fimmtudagsins 10. október fór Íslandsmót taflfélaga af stað með nýju sniði, tíu liðum í efstu deild. GM Hellir tefldi fram tveimur sveitum og mættust þær í fyrstu umferð til að koma öllu samráði og hagsmunamiðuðum tilfærslum frá sem fyrst. Sem fyrr leiddi hinn geðþekki og nú nýgifti breski ofurstórmeistari Gawain Maroroa Jones A-sveitina og betri helmingurinn, Sue Maroroa Jones, styrkti B-sveitina. Gawain á hægri hönd var stórefnilegur prýðispiltur frá Hollandi, hinn tæplega nítján ára gamli Robin van Kampen. Úrslit í þessari viðureign voru að mestu leyti eftir bókinni; A-sveitin hafði sigur á öllum borðum nema því fimmta, þar sem hinn ólseigi Arngrímur Gunnhallsson náði jafntefli gegn Lenku Ptácníkovu í grimmúðlegri viðureign. Vert er líka að nefna viðureignina á áttunda borði, þar sem sóknarskákmennirnir Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Björn Þorsteinsson skiptust á sverðhöggum, en þar hafði reynslan sigur að þessu sinni eftir snarpa rimmu.
GM-Hellir -B
Framvarðarsveit TR tuktaði hins vegar eigið B-lið með sama mun, og Bolvíkingar buðu Vinaskákfélagið velkomið í efstu deild með álíka skriðtæklingu, þannig að þrjú lið sátu á toppnum eftir fyrstu umferð. Næstir komu Vestmannaeyingar með sex punkta úr greipum Fjölnis og síðan Íslandsmeistarar Víkingaklúbbsins, sem höfðu unnið Skákfélag Akureyrar með fimm og hálfum vinningi gegn tveimur og hálfum.
Í annarri umferð bættust neðri deildirnar í hópinn og var öllu kunnuglegri bragur á því að tefla í stóra salnum í Rimaskóla en ekki hliðarsalnum frá því kvöldið áður, þar sem fótboltalandsleik Íslands og Kýpur var varpað á vegg í staðinn. A-sveitin gekk á undan með góðu fordæmi og vann afbragðs sigur á Taflfélagi Bolungarvíkur, fimm og hálfum vinningi gegn tveimur og hálfum. B-sveitin mætti Taflfélagi Vestmannaeyja og átti undir högg að sækja. Pálmi Pétursson vann hins vegar ágætan sigur á Sigurbirni Björnssyni, bóksalanum öfluga, og Hrannar Arnarsson hélt jöfnu gegn Þorsteini Þorsteinssyni. Á efsta borði stóð Lenka lengi vel til vinnings gegn hinum þrautreynda litháíska ofurstórmeistara Eduardas Rozentalis en hafði að lokum ekki erindi sem erfiði. Einn og hálfur vinningur var hins vegar viðunandi úrslit gegn sveit sem státaði af fjórum stórmeisturum og þremur FIDE-meisturum. Að umferðinni lokinni var A-sveitin á toppi deildarinnar með 13 vinninga en TV hálfum vinningi á eftir. B-sveitin var hins vegar á botninum með tvo vinninga eftir erfiða byrjun.
Van Kampen, Jón Þ. Sue og Gawain.
Morgunstund gaf gull í mund á löngum laugardegi þegar A-sveitin vann 7-1 sigur á B-sveit Taflfélags Reykjavíkur, sem var svipuð úrslit og við var að búast miðað við styrkleika. B-sveitin dró þrjá vinninga í hús gegn Fjölni, en áhugavert er að bera saman samsetningu sveitanna í þessari viðureign. Heil 678 Elo-stig skildu að efsta og neðsta borð Fjölnis, meðan aðeins 191 stig var á milli sömu borða hjá jafnari sveit okkar fólks. Enda fór svo að neðstu borðin reyndust happadrýgst og Mátarnir Jón Árni Jónsson og fyrrnefndur Arngrímur hirtu heila punkta. Á meðan hrökk Víkingavélin í gang og flengdi Vinaskákfélagið 8-0, Skákfélag Akureyrar vann óvæntan 5-3 sigur á Taflfélagi Reykjavíkur og Eyjamenn höfðu Bola undir með minnsta mun. Okkar menn í A-sveitinni voru enn efstir en Víkingar einum og hálfum vinningi á eftir. B-sveitin var hins vegar í botnkraðaki með Vinaskákfélaginu og TR-b.
Gunnar Björnsson var á 1. borði í C-sveit GM-Hellis.
Eftir síestuna settist A-liðið niður gegnt Íslandsmeisturunum í Víkingaklúbbnum og upphófst hörð rimma sem lauk með minnsta mögulega tapi. Sömu punktatölu náði B-liðið gegn Akureyringum í heldur friðsamlegri viðureign þar sem Baldur Kristinsson hafði betur gegn skákfrömuðinum valinkunna Stefáni Bergssyni, en hvorug úrslitin voru fjarri því sem búast mátti við fyrir fram. Vestmannaeyingar stukku í toppsætið með því að kjöldraga B-lið TR 7½-½ en A-lið TR lék Vinaskákfélagið jafn grátt. Bolvíkingar unnu síðan Fjölnismenn 5½-2½. Enn var allt í járnum á toppnum, við vinningi á eftir Eyjamönnum og Víkingar andandi ofan í hálsmálið á okkur hálfum vinningi neðar. Allt var hins vegar í framför í fallbaráttunni og bil að myndast á milli B-sveitarinnar annars vegar og Vina og TR-b hins vegar.
Á sunnudag mætti A-lið GM Hellis stórveldinu TR og marði minnsta mögulega sigur með góðum sigrum hjá van Kampen og Sigurði Daða. B-sveitin hafði þrjá vinninga af Bolvíkingum, þar sem Baldur Kristinsson vann aftur, nú gegn Magnúsi Pálma Örnólfssyni. Björn Þorsteinsson og Jón L. Árnason sættust á skiptan hlut, svo og Tómas Björnsson og Jón Viktor Gunnarsson. Einnig skildu Kristján Eðvarðsson og Bragi Þorfinnsson jafnir en á efsta borðinu mátti Magnús Teitsson játa sig sigraðan eftir tímahraksbarning gegn Jóhanni Hjartarsyni. Enn ein frambærileg úrslit hjá varaliðinu. Í fréttum var það annars helst þann dag að Víkingar og Eyjamenn skildu jafnir í þungavigtarslag, Akureyringar unnu Vinaskákfélagið 7-1 og Fjölnir sigraði TR-b með 6½ vinningi gegn 1½.
A-sveit GM-Hellis gegn Víkingaklúbbnum.
Að fimm umferðum loknum af níu er baráttan á toppnum æsispennandi. Taflfélag Vestmannaeyja hefur sýnt mikinn stöðugleika og er efst með 28½ vinning en A-sveit GM Hellis er aðeins hálfum vinningi þar á eftir. Víkingaklúbburinn kemur síðan næstur með 27 vinninga og virðist eiga léttari andstæðinga eftir, þannig að óráðlegt kann að vera að veðja á að nýir Íslandsmeistarar verði krýndir í vor. TR, TB og SA eru heldur ekki víðs fjarri en þurfa að gefa í til að komast í verðlaunasæti. Fjölnismenn úr Grafarvogi eru í einskismannslandi deildarinnar en B-sveit GM Hellis stendur vel að vígi til að bjarga sér frá falli nema Vinaskákfélagið og TR-b komi á óvart í síðari fjórum umferðunum í febrúarlok.
Gawain Jones sýndi enn og aftur hvílík mulningsvél hann er í þessari keppni, enda kann hann hvergi betur við sig en á Íslandi. Frammistaða upp á 2.796 stig og 4½ vinningar er ógnvekjandi árangur. Þá var Robin van Kampen fjalltraustur með fjóra vinninga. Árangur Einars Hjalta Jenssonar er einstaklega eftirtektarverður, en hann tefldi eins og 2.559 stiga maður og leyfði aðeins eitt jafntefli. Slík grimmd er til fyrirmyndar og sýnir hversu nautsterkur skákmaður Einar Hjalti er orðinn. Einnig átti Sigurður Daði stórgóða helgi og Kristján Eðvarðsson var afar stöðugur þrátt fyrir brokk milli A- og B-liða. Félagsmenn GM Hellis geta verið hæstánægðir með gengi liðanna tveggja í efstu deild en mörg stig eru enn eftir í pottinum og baráttan verður enn meira spennandi í vor.
D-sveit GM-Hellis.
2. deild
Þar sem Goðinn-Mátar og Hellir áttu samtals þrjú lið í 1. deildinni fyrir sameiningu og reglur leyfa ekki þrjú lið frá sama félagi í efstu deild varð það hlutskipti C-liðs GM-Hellis að tefla í 2. deildinni og tók Vinaskákfélagið laust sæti í 1. deild í staðinn. C-liðið tapaði 2-4 fyrir TV-B í 1. umferð og tapaði síðan stórt fyrir B-sveit Víkingaklúbbsins, ½-5½, í annarri umferð. Liðið fékk 1½ vinning gegn Skákfélagi Íslands í 3. umferð en náði jafntefli gegn Haukum í 4. umferð, 3-3.
C-lið GM-Hellis er í neðsta sæti í 2. deildinni með 7 vinninga og þarf að ná hagstæðum úrslitum í seinni hlutanum til þess að falla ekki um deild. Vigfús Vigfússon og Arnaldur Loftsson náðu bestum árangri þeirra sem tefldu í C-liðinu og uppskáru 2½ vinning hvor fyrir C-liðið
3. deild.
Skákfélagið GM Hellir var með þrjár sveitir í 3. deild að þessu sinni sem fengu heitin D, E og F. Við veltum því mikið fyrir okkur að senda sterka unglingasveit til leiks sem þeir Hilmir Freyr, Dawid, Felix, Heimir Páll, Óskar Víkingur og Alec Elías hefðu skipað. Sú sveit hefði teflt í fjórðu deildinni en við hættum við það þegar í ljós kom að F-sveitin í 3. deild hefði verið mun veikari en þessi unglingasveit og E-sveitin hefði verið sambærileg og þessi unglingasveit að styrkleika. Einnig hafði það áhrif að í 3. deildinni voru flestar sveitir vel skipaðar enda búið að fækka í deildinni um tvær sveitir frá árinu áður, þannig að hana skipuðu 14 sveitir. Þessir yngri félagsmenn fengju þá tækifæri til að tefla við sterka og reynda skákmenn í hverri viðureign.
GM-Hellir E-sveit
Þessi ákvörðun átti eftir að borga sig því þeir unglingar sem tefldu fyrir sveitirnar í 3. deild höluðu inn marga vinninga og eiga sinn þátt í að staða sveitanna er mun betri en búist var við. Fyrir fram reiknuðum við með að D-sveitin yrði fyrir ofan miðju, E-sveitin við miðju eða aðeins neðar og F-sveitin yrði í mikilli fallhættu. Sveitirnar eru nokkuð á svipuðu róli og reiknað var með fyrir utan það að F-sveitin er fyrir ofan E-sveitina, sem helgast að einhverju leyti af misjafnlega sterkum andstæðingum í sunnudagsumferðinni. Líklega jafnast það þegar líður á mótið.
D-sveitina skipuðu Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, Helgi Brynjarsson, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Fumey Enyonam Sewa, Sigurður G. Daníelsson, Sigurður J. Gunnarsson, Jakob Sævar Sigurðsson, Snorri Þór Sigurðsson, Kristján Halldórsson, Óskar Maggason, Örn Stefánsson og Hilmir Freyr Heimisson.
E-sveitina skipuðu Snorri Þór Sigurðsson, Kristján Halldórsson, Óskar Maggason, Örn Stefánsson, Halldór Kárason, Elsa María Kristínardóttir, Hilmir Freyr Heimisson, Tómas Árni Jónsson, Smári Sigurðsson, Dawid Kolka, Jón Gunnar Jónsson, Benedikt Þorri Sigurjónsson, Kristófer Ómarsson, Gunnar Nikulásson og Sigurður Freyr Jónatansson.
F-sveitina skipuðu Smári Sigurðsson, Dawid Kolka, Kristófer Ómarsson, Gunnar Nikulásson, Sigurður Freyr Jónatansson, Felix Steinþórsson, Heimir Páll Ragnarsson, Jón Eggert Hallsson, Haraldur Magnússon, Ævar Ákason, Hermann Aðalsteinsson og Óskar Víkingur Davíðsson.
GM-Hellir F-sveit
4. deild.
GM-Hellir tefldi fram þremur liðum í 4. deildinni; G-liði og
svo Unglingaliði A og B. G-liðið átti erfitt uppdráttar til að byrja með og
tapaði stórt fyrir B-liði Reykjanesbæjar ½-5½. G-liðið tapaði einnig stórt
fyrir TR-unglingasveit B í annarri umferð. G-liðið fékk svo okkar eigin
unglingasveit B í þriðju umferð og vann örugglega 5½-½ og vann svo 6-0 sigur á
B-sveit skákdeildar Hauka. Staða G-liðsins í 4. deildinni er ágæt. Liðið er í
9. sæti með 4 punkta og 13 vinninga en mun líklega ekki blanda sér í toppbaráttuna
að þessu sinni. Óskar Víkingur Davíðsson stóð sig best í G-liðinu og fékk 2½
vinning úr þremur skákum.
GM-Hellir G-sveit teflir við Unglingasveit B
Unglingalið A tapaði fyrir B-sveit Vinaskákfélagsins í 1.
umferð 1½-4½. Gerði svo jafntefli við Skákdeild Hauka-B í annarri umferð. Liðið
tapaði 0-6 fyrir D-liði Víkingaklúbbsins í 3. umferð og mætti svo hinu
unglingaliðinu okkar í 4. umferð og vann nauman sigur 3½-2½. Liðið er í 12.
sæti með 8 vinninga. Brynjar Haraldsson náði tveim vinningum úr 4 skákum og
Sindri Snær Kristófersson fékk 1½ vinning.

Unglingasveitir GM-Hellis, A og B mættust í 4. umferð.
Unglingalið-B var eingöngu skipað unglingum úr
Þingeyjarsýslu og var þetta í fyrsta sinn sem liðsmenn sveitarinnar taka þátt í
Íslandsmóti skákfélaga. Fyrir fram var ekki búist við stórum afrekum hjá liðinu
en það var þó ekki „núllað út“ í neinni viðureign. Liðið náði hálfum vinningi
gegn Mosfellsbæ í 1. umferð og í annarri umferð náðist einn vinningur gegn
B-liði SSON, þar sem Bjarni Jón Kristjánsson gerði sér lítið fyrir og vann
Ingibjörgu Eddu Birgisdóttur á fyrsta borði með glæsilegum hætti. Unglingaliðið
náði svo ½ vinningi gegn G-liðinu okkar og 2½ vinningi gegn unglingaliði A,
eins og áður segir. Liðið er sem stendur neðst í 4. deildinni með 4½ vinning.
Eyþór Kári Ingólfsson fékk 1½ vinning og þeir Bjarni Jón og Helgi James
Þórarinsson fengu einn vinning hvor.

Vigfús Vigfússon Omar Salama yfirmótsstjóri og Viðar Njáll Hákonarson.
Nokkrir eftirmálar urðu af fyrri hluta Íslandsmótsins, sem ekki sér fyrir endan á, því alls bárust okkur 11 kærur vegna meintrar ólöglegrar uppstillingar á sameiginlegu liði GM-Hellis. Mótsstjórn ÍS vísaði þeim öllum frá í vikunni en þremur þeirra var vísað til dómstóls Skáksambandssins.
Þegar þetta er skrifað hefur dómstóll SÍ ekki skilað af sér niðurstöðu. Niðurstöðu er að vænta á næstu dögum.
Formaður og varaformaður GM-Hellis þakkar öllum þeim skákmönnum sem tefldu fyrir GM-Helli í fyrri hluta Íslandsmótsins kærlega fyrir og vonast eftir því að sjá þá alla í seinni hlutanum í Hörpu.