XXI. Íslandsmótið í netskák fer fram sunnudaginn 15. janúar Mótið fer fram á vefsíðunni Chess.com og hefst kl. 20:00. Mótið er öllum opið og er teflt er einum flokki.

 

Mótið var áður á dagskrá þann 30. desember s.l., en því miður þurfti að aflýsa mótinu vegna óviðráðanlegra aðstæðna.

Í fyrstu var talið að tæknibilun hefði orðið til þess að fjöldi þátttakenda gat ekki opnað mótið. Nú liggur fyrir að svo var ekki. Orsökin reyndist vera allt önnur og mannlegri, en í ljós kom að fjöldi keppenda misskildi kerfið og tókst ekki að opna mótið með réttum hætti.

Það er því afar mikilvægt að allir, sérstaklega þeir sem gátu ekki tekið þátt síðast, kynni sér vel leiðbeiningar sem bæði má finna hér og verða sendar í tölvupósti á skráð netfang þátttakenda.

Athugið að þeir sem eru með ókeypis aðgang að Chess.com geta aðeins teflt í þremur mótum í hverri viku. Gæta verður að því að sá kvóti hafi ekki klárast fyrir mótið.

 

Davíð Kjartansson er núverandi Íslandsmeistari í netskák, en hann hefur unnið mótið oftast allra eða sex sinnum!

Það er Skákfélagið Huginn sem stendur fyrir mótinu.

Spurningar eða athugasemdir er hægt að senda á netfangið eggid77@gmail.com

 

ATHUGIÐ

  • ATH. Nauðsynlegt er að keppendur séu fyrirfram skráðir og búnir að opna mótið áður en það hefst. Beinn tengill á mótið verður auglýstur (hér) sólarhring fyrir mót.
  • Mótið er tímastillt og fer sjálfkrafa af stað kl. 20, sunnudaginn 15. janúar. Ekki verður hægt að bæta keppendum í mótið eftir að það hefst, ekki einu sinni skráðum keppendum.
  • Lokað verður fyrir skráningu kl. 18:00, sunnudaginn 15. janúar – Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma.
  • Athugið að þeir sem eru með ókeypis aðgang að Chess.com geta aðeins teflt í þremur mótum í hverri viku. Gæta verður að því að sá kvóti hafi ekki klárast fyrir mótið.

 

1. Skráning. Athugið að ljúka verður báðum skrefum til að vera skráður í mótið.

Allir verða að fara á síðu mótsins á Chess.com og smella á “Join” þar. Athugið að síða mótsins er EKKI mótið sjálft.

Vinsamlegast athugið að ljúka þarf báðum skrefum hér að neðan til að vera fullskráður í mótið.

1.1. Annars vegar er nauðsynlegt að fylla út skráningarformið, en öðruvísi er ekki hægt að bera kennsl á keppendur vegna verðlauna.

1.2. Hins vegar þurfa keppendur að skrá sig í hóp mótsins á Chess.com, en öðruvísi sjá þeir ekki mótið á vefnum. Athugið að hópur mótsins á Chess.com er ekki mótið sjálft.

 

Þeir sem skráðu sig til leiks fyrir mótið þann 30. desember, þurfa ekki að skrá sig aftur. Hægt er að skoða keppendalistann hér og athuga hvort notandanafn sé ekki örugglega litað grænt, þá er skráningin í gildi og í lagi.

Þeir sem ekki ljúka báðum skrefunum, eru ekki skráðir í mótið og geta ekki tekið þátt. Hægt er að skoða keppendalistann hér og athuga hvort notandanafn sé ekki örugglega litað grænt, þá er skráningin í lagi.

 

2. Tímamörk og leiðbeiningar til að opna mótið

Svona lítur mótsglugginn út – Nauðsynlegt er að smella á “Join” þarna og það verður að gerast FYRIR upphaf móts.

Tímamörk eru 3 + 2 (3 mínútur + 2 viðbótarsekúndur á hvern leik). Tefldar eru 11 umferðir.

2.1. Einfaldast er að nota beinan tengil á mótið (verður auglýstur sólarhring fyrir mót) og smella á “Join” takkann (eins og á myndinni hér til hliðar). Join takkinn birtist kl. 19, sunnudaginn 15. janúar.

2.2. Mikilvægt er að það sé gert áður en mótið hefst, en ekki verður hægt að bæta við keppendum eftir að mótið er hafið, ekki einu sinni skráðum keppendum.

 

Öruggast er að opna mótið með beina tenglinum (auglýstur sólarhring fyrir mót) strax kl. 19, sunnudaginn 15. janúar og smella á “join”.

Athugið að þeir sem eru með ókeypis aðgang að Chess.com geta aðeins teflt í þremur mótum í hverri viku. Gæta verður að því að sá kvóti hafi ekki klárast fyrir mótið.

Lendi keppendur í vandræðum með að opna mótið, er nauðsynlegt að láta vita af því strax (kl. 19) svo mögulegt sé að leysa úr því. Senda skal póst á netfangið eggid77@gmail.com.

Vefstjóri Chess.com verður á svæðinu til að fylgjast með, og leðibeina, ef eitthvað er að.

 

Ókeypis að skrá notanda

Þeir sem ekki eru skráðir á Chess.com geta skráð sig á vef þeirra en það er ókeypis.

Bent er á að einfalt er að endurnýja lykilorð, hafi það tapast, með því að fara á þessa slóð – https://www.chess.com/forgot – og skrá þar inn netfang.

Athugið að þeir sem eru með ókeypis aðgang að Chess.com geta aðeins teflt í þremur mótum í hverri viku. Gæta verður að því að sá kvóti hafi ekki klárast fyrir mótið.

 

Skráðir keppendur

 

Verðlaun:

  1. 10.000 kr.
  2. 6.000 kr.
  3. 4.000 kr.

 

Aukaverðlaun:

Aukaverðlaun verða í formi Demants áskriftaraðgangs á Chess.com

Demantsaðgangur veitir fullan aðgang að allri þjónustu vefsins. Sem dæmi má nefna byrjanagagnagrunn, skákþrautir, ýmiskonar skákkennsla, myndbönd og fleira.

Undir 2100 skákstigum (miðað við nýjustu íslensku skákstig):

  • 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
  • 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur

Undir 1800 skákstigum (miðað við nýjustu íslensku skákstig):

  • 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
  • 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur

Stigalausir:

  • 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
  • 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur

Unglingaverðlaun (15 ára og yngri):

  • 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
  • 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur

Kvennaverðlaun:

  • 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
  • 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur

Eldri skákmenn (60 ára og eldri):

  • 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
  • 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur

 

Íslandsmeistarar í netskák

  • 2015 – Davíð Kjartansson
  • 2014 – Davíð Kjartansson
  • 2013 – Bragi Þorfinnsson
  • 2012 – Davíð Kjartansson
  • 2011 – Davíð Kjartansson
  • 2010 – Davíð Kjartansson
  • 2009 – Jón Viktor Gunnarsson
  • 2008 – Arnar E. Gunnarsson
  • 2007 – Stefán Kristjánsson
  • 2006 – Snorri G. Bergsson
  • 2005 – Arnar E. Gunnarsson
  • 2004 – Stefán Kristjánsson
  • 2003 – Arnar E. Gunnarsson
  • 2002 – Arnar E. Gunnarsson
  • 2001 – Helgi Áss Grétarsson
  • 2000 – Stefán Kristjánsson
  • 1999 – Davíð Kjartansson
  • 1998 – Róbert Lagerman
  • 1997 – Benedikt Jónasson
  • 1996 – Þráinn Vigfússon