Gauti Páll Jónsson, Jón Kristinn Þorgeirsson og Símon Þórhallsson
Gauti Páll Jónsson, Jón Kristinn Þorgeirsson og Símon Þórhallsson tóku allir þátt | Mynd: Sigurður Arnarson

Akureyringurinn knái, Jón Kristinn Þorgeirsson (Jokksi99) sigraði af fádæma öryggi á Íslandsmótinu í netskák sem fram fór í gær, sunnudag. Fullyrða má að Jón, sem um árabil hefur borið höfuð og herðar yfir aðra Norðlenska skákmenn, hafi verið í algjörum sérflokki á mótinu. Jón fékk alls 10,5 vinninga í 11 skákum, 1,5 vinningum meira en næsti maður, og leyfði aðeins eitt jafntefli, gegn fráfarandi sexföldum Íslandsmeistara, Davíð Kjartanssyni (Yuwono).

FIDE-meistarinn Magnús Örn Úlafsson (AC130-Ghostrider) endaði í 2. sæti með 9 vinninga og FM Davíð Kjartansson (Yuwono) var í þriðja sæti með 8 vinninga.

Mótið í ár var nokkuð óhefðbundið, skipt var um vettvang fyrir mótið sem hefur átt lögheimili og varnarþing á skákþjóninum ICC um langt árabil, og teflt á Chess.com. Vistaskiptin reyndust vandasöm, en allt gekk upp á endanum og verður vart annað séð en að keppendur hafi tekið breytingunni vel.

57 keppendur tóku þátt í ár, flestir Íslendingar en einnig var nokkur fjöldi Grænlendinga sem ákveðið var að bjóða til þátttöku í ár. Tefldu þeir um óformlegan titil Grænlandsmeistara í netskák, en sæmdarheitið í þetta sinn hlaut meistarinn Ral Fleischer (SuperRal) frá Nuuk, en hann hlaut 5,5 vinninga úr skákunum 11. Brian Sørensen (privatbss) varð í 2. sæti, en hann hlaut alls 5 vinninga. Grænlendingar eru þegar farnir að undirbúa næsta mót og ætla sér enn stærri hluti árið 2017.

Keppendum eru færðar þakkir fyrir þátttökuna og vonumst við til að sjá sem flesta að ári.

  • Skoða má öll úrslit og allar skákir mótsins hér.
  • Lokastöðuna og úrslit í flokkum má svo skoða hér.

Aukaverðlaun

Aukaverðlaun eru í formi Demants áskriftaraðgangs á Chess.com

Demantsaðgangur veitir fullan aðgang að allri þjónustu vefsins. Sem dæmi má nefna byrjanagagnagrunn, skákþrautir, ýmiskonar skákkennsla, myndbönd og fleira.

Fimm mánuðir eru veittir fyrir 1. sæti og þrír fyrir 2. sæti í öllum flokkum.

 

U/2100

Tvíburarnir efnilegu, Björn Hólm (Bjorn_Holm) og Bárður Örn Birkissynir (Bardur_Orn), fengu einnig 8 vinninga líkt og Davíð, en voru með heldur lakari niðurstöðu eftir stigaútreikning. Þeir bræður vinna hins vegar U/2100 stiga flokkinn nokkuð örugglega, 1,5 vinningi á undan næsta manni. Björn reyndist vera með örlítið betri stöðu eftir stigaútreikning, eða 51 stig gegn 50,5 stigum Bárðar, og vinnur því 1. verðlaun í þeim flokki. Þess má til gamans geta að þeir bræður fengu einnig jafn marga vinninga á mótinu í fyrra og stigaútreikning þurfti til að skera úr um hvor væri ofar.

 

U/1800

Ingvar Örn Birgisson (Harry_Kane) sigraði í flokki skákmanna með minna en 1800 skákstig, en hann endaði með 6,5 vinninga (36.25 stig). Aðalsteinn Thorarensen (adlthor23) var í 2. sæti í U/1800 stiga flokki, einnig með 6,5 vinninga (31.25) en örlítið lakari stig.

 

Stigalausir

Knútur A Óskarsson (krummmi) sigraði nokkuð örugglega í flokki stigalausra, hlaut alls 6 vinninga, og Sveinbjörn Jón Ásgrímsson (SveinbjornJon) er í 2. sæti með 5 vinninga.

 

Kvennaflokkur

Elsa María Kristínardóttir (EMK89) sigraði af miklu öryggi í kvennaflokki, hlaut alls sjö vinninga og endar í 8. sæti af 57 og Freyja Birkisdóttir (freyjab) var í 2. sæti.

 

60 ára og eldri

FIDE-meistarinn Áskell Örn Kárason (Flatus) stóð sig best í flokki eldri og heldri skákmanna, en hann fékk alls sjö vinninga og endar í sjöunda sæti. Ögmundur Kristinsson (oddigulli) er í 2. sæti, hálfum vinningi á eftir Áskatli.

 

15 ára og yngri

Ungstirnið Óskar Víkingur Davíðsson (Davidsson) sigraði af miklu öryggi í flokki yngri skákmanna, en hann fékk alls 6,5 vinninga. Halldór Atli Kristjánsson (CAustin9) er í 2. sæti með 4,5 vinninga.

 

Lokastaðan

Íslandsmeistarar í netskák

  • 2016 – Jón Kristinn Þorgeirsson
  • 2015 – Davíð Kjartansson
  • 2014 – Davíð Kjartansson
  • 2013 – Bragi Þorfinnsson
  • 2012 – Davíð Kjartansson
  • 2011 – Davíð Kjartansson
  • 2010 – Davíð Kjartansson
  • 2009 – Jón Viktor Gunnarsson
  • 2008 – Arnar E. Gunnarsson
  • 2007 – Stefán Kristjánsson
  • 2006 – Snorri G. Bergsson
  • 2005 – Arnar E. Gunnarsson
  • 2004 – Stefán Kristjánsson
  • 2003 – Arnar E. Gunnarsson
  • 2002 – Arnar E. Gunnarsson
  • 2001 – Helgi Áss Grétarsson
  • 2000 – Stefán Kristjánsson
  • 1999 – Davíð Kjartansson
  • 1998 – Róbert Lagerman
  • 1997 – Benedikt Jónasson
  • 1996 – Þráinn Vigfússon