Mjóddarmótið fer fram laugardaginn 7. júlí í göngugötunni í Mjódd. Mótið hefst kl. 12 og er mótið öllum opið. Góð verðlaun í boði. Á síðasta ári sigraði Lyfjaval í Mjódd en fyrir þá tefldi Hjörvar Steinn Grétarsson. Tefldar verða sjö umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á hvern leik. Skráning fer fram í síma 866-0116 og á skak.is Þátttaka er ókeypis!

Ef keppendur skrá sig tímanlega til leiks, mæta á réttum tíma og tilkynna úrslit strax og skák er búin þá eiga allir sem vilja að vera komnir í tæka tíð heim að horfa á leik Svíþjóðar og Englands eða hvar þeir ætla að horfa á leikinn.

Mjóddarmótið var fyrst haldið 1999 og hét þá Kosningamót Hellis og fór fram á kjördegi. Á fyrsta mótinu sigraði Hannes Hlífar Stefánsson sem tefldi fyrir Símvirkjann. Mótið fékk fljótlega nafnið Mjóddarmótið enda ekki hægt að halda kosningamót á hverju ári og ekki var mögulegt að halda mótið á kjördegi eftir að félagið flutti í núverandi húsnæði.

Verðlaun eru sem hér segir:

1. 20.000
2. 15.000
3. 10.000

Skráning:

Skráðir keppendur