Keppni lauk í Vestur-riðli Janúarmóts Hugins sl. mánudagskvöld á Vöglum í Fnjóskadal þegar lokaumferðin var tefld. Rúnar Ísleifsson (1799) vann Ármann Olgeirsson (1587), Hjörleifur Halldórsson (1850) vann Sigurbjörn Ásmundsson (1516) og Karl Egill Steingrímsson (1678) og Hermann Aðalsteinsson gerðu jafntefli (1663)
Lokastaðan í Vestur-riðli
Rk. | SNo | Name | FED | Rtg | Pts. | TB1 | TB2 | TB3 | |
1 | 3 | Isleifsson Runar | ISL | 1799 | 4,5 | 9,25 | 0,0 | 4 | |
2 | 5 | Steingrimsson Karl Egill | ISL | 1678 | 3,5 | 5,75 | 0,0 | 3 | |
3 | 1 | Adalsteinsson Hermann | ISL | 1663 | 2,5 | 4,25 | 1,0 | 2 | |
4 | 4 | Halldorsson Hjorleifur | ISL | 1850 | 2,5 | 4,25 | 0,0 | 2 | |
5 | 6 | Olgeirsson Armann | ISL | 1587 | 2,0 | 2,50 | 0,0 | 2 | |
6 | 2 | Asmundsson Sigurbjorn | ISL | 1516 | 0,0 | 0,00 | 0,0 | 0 |
Hlynur Snær Viðarsson (1416) vann Sighvat Karlsson (1289) í loka skák Austur-riðils sem fram fór í gærkvöld á Húsavík, en öðrum skákum í riðlinum lauk um helgina. Í Austur-riðli bar Smári Sigurðsson (1878) sigur úr bítum með 4,5 vinninga.
Lokastaðan í Austur-riðli
Rk. | SNo | Name | FED | Rtg | Pts. | TB1 | TB2 | TB3 | |
1 | 3 | Sigurdsson Smari | ISL | 1878 | 4,5 | 8,75 | 0,0 | 4 | |
2 | 4 | Danielsson Sigurdur | ISL | 1753 | 4,0 | 6,50 | 0,0 | 4 | |
3 | 5 | Vidarsson Hlynur Snaer | ISL | 1416 | 3,5 | 5,25 | 0,0 | 3 | |
4 | 2 | Akason Aevar | ISL | 1621 | 2,0 | 1,00 | 0,0 | 2 | |
5 | 1 | Karlsson Sighvatur | ISL | 1289 | 1,0 | 0,00 | 0,0 | 1 | |
6 | 6 | Bessason Heimir | ISL | 0 | 0,0 | 0,00 | 0,0 | 0 |
Þar með liggur fyrir hverjir mætast í úrslitakeppni Janúarmótsins (playoff) sem er fyrirhugðuð á næstunni.
Smári og Rúnar koma til með að tefla til úrslita um sigur í mótinu. Sigurður Dan. og Karl Egill tefla um 3. sætið. Hermann og Hlynur um 5. sætið, Hjörleifur og Ævar um 7. sætið, Sighvatur og Ármann um 9. sætið og síðan Heimir og Sigurbjörn um 11. sætið. Keppendur tefla tvær einvígisskákir með tímamörkunum 90+30 sek. Verði jafnt eftir þær veður teflt hraðskákeinvígi þar til annar hefur betur.
Stefnt er að því að tefla til úrslita um næstu helgi en ljóst er þó að einhverjum einvígisskákum verður frestað um óákveðin tíma.