Sjötta og næstsíðasta umferð Skákhátíðar MótX var tefld þriðjudagskvöldið 13. febrúar. Keppendur seildust djúpt í nýjustu fræði skáklistarinnar og snjöll tilþrif í bland við dýrkeyptar yfirsjónir héldu áhorfendum vel við efnið.

A flokkur

Jóhann Hjartarson og Björgvin Jónsson voru efstir og jafnir fyrir umferðina með fjóra vinninga hvor. Í humáttina komu Hannes Hlífar, Helgi Áss og Jón Viktor með 31/2 vinning hver en sá síðastnefndi sat yfir í 6. umferð.

Á efsta borði skildu stórmeistararnir Hannes Hlífar og Jóhann Hjartarson jafnir eftir að Hannes hafði átt ögn vænlegri færi framan af að mati Jóhanns. Á öðru borði fórnaði Helgi Áss skiptamun fyrir peð og góð tök á miðborðinu nægðu til að leggja starfsbróður hans úr stétt lögfróðra, Björgvin Jónsson, að velli í afar vandtefldri skák. Á þriðja borði skellti Jón L. Ingvar Þór með skarpri taflmennsku og var sigurinn verðskuldaður að sögn veflýsandans vinsæla, Ingvars Þórs.

Reynsla og útsjónarsemi Þrastar Þórhallssonar var efnispiltinum Vigni Vatnari ofviða og Leo Örn kom nokkuð á óvart með því að leggja hinn eitilharða sigurvegara síðasta árs, Daða Ómarsson, með svörtu. Kristján Eðvarðsson sneri á Benedikt Jónasson og Lenka tapaði naumlega í endatafli fyrir Guðmundi Halldórssyni eftir að hafa komið sér upp vænlegri stöðu.

Þorsteinn Þorsteinsson og Halldór Grétar skildu jafnir í vel tefldri skák af beggja hálfu og Baldur Kristinsson undirstrikaði enn frekar vaxandi styrk sinn með góðu jafntefli við nýbakaðan Norðurlandameistara, Oliver Jóhannesson.

 

Skákhátíð MótX – úrslit 6. umferðar 13. febrúar
Nafn Stig Vinn. Úrslit Vinn. Nafn Stig
GM Stefansson Hannes  2523 ½ – ½ 4 GM Hjartarson Johann  2536
GM Gretarsson Helgi Ass  2441 1 – 0 4 IM Jonsson Bjorgvin  2349
GM Arnason Jon L  2457 3 1 – 0 3 FM Johannesson Ingvar Thor  2352
GM Thorhallsson Throstur  2418 3 1 – 0 3 FM Stefansson Vignir Vatnar  2304
FM Thorsteinsson Thorsteinn  2327 ½ – ½ FM Einarsson Halldor Gretar  2236
Omarsson Dadi  2275 0 – 1 Johannsson Orn Leo  2200
Kristinsson Baldur  2185 ½ – ½ 2 FM Johannesson Oliver  2277
Edvardsson Kristjan  2184 2 1 – 0 2 FM Jonasson Benedikt  2248
WGM Ptacnikova Lenka  2218 2 0 – 1 2 Halldorsson Gudmundur  2174
FM Ragnarsson Dagur  2332 ½ – – + 1 CM Birkisson Bardur Orn  2190
GM Gretarsson Hjorvar Steinn  2565 3 ½ not paired
IM Gunnarsson Jon Viktor  2466 ½ not paired
IM Thorfinnsson Bjorn  2400 ½ not paired
FM Ulfarsson Magnus Orn  2371 0 not paired
IM Jensson Einar Hjalti  2336 3 ½ not paired
FM Asbjornsson Asgeir  2267 2 ½ not paired
FM Sigfusson Sigurdur  2228 2 ½ not paired

 

Æsispennandi viðureignir í lokaumferðinni

Jóhann Hjartarson og Helgi Grétarson eru efstir að sex umferðum loknum með fjóra og hálfan vinninga hvor. Fast á á hæla þeirra með fjóra vinninga koma Hannes Hlífar, Björgvin Jónsson, Þröstur Þórhallsson, Jón Viktor og Jón L. Þrjá og hálfan vinning hafa Hjörvar Steinn, Örn Leó og Einar Hjalti.

Þriðjudaginn 20. febrúar kl. 19.30 nær baráttan hámarki á þessu gríðarsterka móti. Þá stýrir Jóhann hvítu fylkingunni gegn svartstökkum Helga í skák sem ræður úrslitum í mótinu ef öðrum hvorum veitir betur. Björgvin hefur hvítt gegn Hannesi Hlífari, Þröstur hvítt gegn Jóni Viktori, Hjörvar Steinn hvítt gegn Jóni L. og Örn Leó leggur til Kristjáns undir merkjum hvítliða. Sjá aðrar viðureignir hér:

 

Skákhátíð MótX – Pörun 7. og síðustu umferðar
Nafn Stig Vinn. Vinn. Nafn Stig
GM Hjartarson Johann  2536 GM Gretarsson Helgi Ass  2441
IM Jonsson Bjorgvin  2349 4 4 GM Stefansson Hannes  2523
GM Thorhallsson Throstur  2418 4 4 IM Gunnarsson Jon Viktor  2466
GM Gretarsson Hjorvar Steinn  2565 4 GM Arnason Jon L  2457
Johannsson Orn Leo  2200 3 Edvardsson Kristjan  2184
FM Stefansson Vignir Vatnar  2304 3 3 IM Thorfinnsson Bjorn  2400
FM Johannesson Ingvar Thor  2352 3 3 Kristinsson Baldur  2185
Halldorsson Gudmundur  2174 3 3 FM Thorsteinsson Thorsteinn  2327
FM Einarsson Halldor Gretar  2236 3 Omarsson Dadi  2275
FM Sigfusson Sigurdur  2228 FM Asbjornsson Asgeir  2267
FM Jonasson Benedikt  2248 2 2 CM Birkisson Bardur Orn  2190
WGM Ptacnikova Lenka  2218 2 bye
FM Ulfarsson Magnus Orn  2371 not paired
IM Jensson Einar Hjalti  2336 not paired
FM Ragnarsson Dagur  2332 ½ not paired
FM Johannesson Oliver  2277 not paired

 

Hvítir hrafnar

Tvær frestaðar skákir úr 4. umferð voru tefldar þriðjudaginn 13. febrúar. Björn Halldórsson og Júlíus Friðjónsson skildu jafnir eftir að Björn hafði staðið ögn betur. Jón Þorvaldson lagði Braga Halldórsson í hörkuskák þar sem allt var lagt undir. Bragi fékk ágæt færi framan af en varnir hans brustu í lokin undan sóknarþunga svarts

Jón, Bragi og Júlíus eru efstir og jafnir fyrir síðustu umferð með tvo og hálfan vinning hver að lokum fjórum umferðum.

 

Hvítir hrafnar – staðan fyrir lokaumferðina
Sæti Nafn Stig 1 2 3 4 5 6 Vinn.  TB1  TB2  TB3
1 Thorvaldsson Jon 2170 * ½ 1 ½ ½ 2,5 5,25 0 1
2 Fridjonsson Julius 2137 ½ * ½ 1 ½ 2,5 4,25 0 1
3 Halldorsson Bragi 2082 0 * ½ 1 1 2,5 3,5 0 2
4 GM Olafsson Fridrik 2365 ½ ½ ½ * ½ 2 4,5 0 0
5 Thorvaldsson Jonas 2258 0 0 ½ * 1 1,5 2 0 1
6 Halldorsson Bjorn 2182 ½ ½ 0 0 * 1 2,5 0 0

 

Fimmta og síðasta umferð Hvítra hrafna verður tefld þriðjudaginn 20. febrúar. Þá teflir Friðrik við Björn, Jón mætir Jónasi og Júlíus etur kappi við Braga.

B-flokkurinn

Þeir Siguringi, Gauti Páll og Birkri Ísak voru jafnir og efstir fyrir umferðina. Þrjár efstu viðureignir flokksins voru á efri hæðinni. Á efsta borði náði Siguringi að knésetja Birki Ísak með svörtu. Og þar sem hinn efnilegi Alexander Oliver Mai náði örugglega jafntefli gegn Gauta Páli á öðru borði, þá er Siguringi efstur fyrir lokaumferðina. Á þriðja borði var Hilimir Freyr nýkominn frá Finnlandi sem Norðurlandameistari og vann sigur á Agnari Tómasi eftir að hafa staðið höllum fæti alla skákina. Aron Þór Mai blandar sér svo í toppbaráttuna með því að vinna Ólaf Evert.

Skákhátíð MótX – úrslit 6. umferðar B-flokks 13. febrúar
Name Rtg Pts. Result Pts. Name Rtg
Johannsson Birkir Isak 1760 4 0 – 1 4 Sigurjonsson Siguringi 2034
Jonsson Gauti Pall 2161 4 ½ – ½ Mai Alexander Oliver 1970
CM Heimisson Hilmir Freyr 2136 1 – 0 4 Moller Agnar T 1925
Ulfsson Olafur Evert 1784 0 – 1 Mai Aron Thor 2066
Sigurdarson Alec Elias 1373 3 ½ – ½ Sigurdsson Birkir Karl 1934
Heidarsson Arnar 1592 3 + – – Jonsson Olafur Gisli 1856
Birkisson Bjorn Holm 2084 1 – 0 Omarsson Kristofer 1744
Alexandersson Orn 1366 0 – 1 Halldorsson Kristjan 1889
Gunnarsson Baltasar Mani Wedhol 1268 0 – 1 Davidsson Oskar Vikingur 1854
Eliasson Kristjan Orn 1846 1 – 0 Jonatansson Sigurdur Freyr 1642
Luu Robert 1680 + – – 2 Einarsson Oskar Long 1785
Gudmundsson Gunnar Erik 1491 2 1 – 0 2 Davidsson Stefan Orri 1280
Johannsson Hjortur Yngvi 1472 2 ½ – ½ 2 Birkisdottir Freyja 1483
Haile Batel Goitom 1421 – – + 1 Sigfusson Ottar Orn Bergmann 1096
Steinthorsson Birgir Logi 1080 1 – – + ½ Karlsson Isak Orri 1307
Briem Stephan 1890 3 ½ not paired
Hilmarsson Andri Steinn 1606 1 0 not paired
Briem Benedikt 1464 ½ not paired

 

Í síðustu umferð eiga fjórir skákmenn möguleika á að standa uppi sem sigurvegarar. Spennandi þriðjudagskvöld er framundan.

B-flokkur – pörun lokaumferðarinnar
Nafn Stig Vinn. Vinn. Nafn Stig
Mai Aron Thor 2066 5 Sigurjonsson Siguringi 2034
Jonsson Gauti Pall 2161 CM Heimisson Hilmir Freyr 2136
Sigurdsson Birkir Karl 1934 4 4 Johannsson Birkir Isak 1760
Heidarsson Arnar 1592 4 4 Moller Agnar T 1925
Mai Alexander Oliver 1970 4 Birkisson Bjorn Holm 2084
Briem Stephan 1890 Ulfsson Olafur Evert 1784
Davidsson Oskar Vikingur 1854 Sigurdarson Alec Elias 1373
Luu Robert 1680 Eliasson Kristjan Orn 1846
Halldorsson Kristjan 1889 3 Gudmundsson Gunnar Erik 1491
Birkisdottir Freyja 1483 Jonsson Olafur Gisli 1856
Omarsson Kristofer 1744 Johannsson Hjortur Yngvi 1472
Jonatansson Sigurdur Freyr 1642 Alexandersson Orn 1366
Gunnarsson Baltasar Mani Wedhol 1268 2 Briem Benedikt 1464
Haile Batel Goitom 1421 2 Sigfusson Ottar Orn Bergmann 1096
Steinthorsson Birgir Logi 1080 1 Karlsson Isak Orri 1307
Davidsson Stefan Orri 1280 2 bye
Einarsson Oskar Long 1785 2 not paired
Hilmarsson Andri Steinn 1606 1 not paired