Vigfús Ó. Vigfússon sigraði á hraðkvöldi Hugins sem fram fór 5. febrúar sl. Vigfús fékk 9,5v í tíu skákum og var það Sigurður Freyr Jónatansson sem náði jafntefli. Sigurður Freyr varð líka örugglega í öðru sæti með 7,5v. Þriðji var svo Árni Ólafsson með 5,5v sem hefðu alveg getað orðið fleiri.

Tölvan var biluð á æfingunni svo ekki var hægt að nota hana til að draga. Það var því gert upp á gamla máttann og sigurvegarinn fékk það hlutverk. Þurfti þá ekki að spyrja að því hver yrði dreginn með þessu fyrirkomulagi. Pétur Jóhannesson kom upp úr hatttinum eins og við var að búast fyrst Björgvin var ekki mættur. Næsta skákkvöld verður mánudaginn 26. febrúar og þá verður atkvöld.

Lokastaðan á chess-results: