Jólamót Goðans 2023 fer fram á veitingastaðnum Hlöðufelli á Húsavík á morgun, fimmtudaginn 28 desember og hefst það kl 13:00. Áætluð mótlok eru um kl 16:00. Tefldar verða að hámarki 7 umferðir og verða tímamörkin 10 mín + 2 sek/á leik í viðbótar tíma.

Mótið verður reiknað til atskákstiga hjá FIDE.
Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu. Ókeypis verður í mótið.

Skráning í mótið er hafin og fer hún fram hér.

Skráðir keppendur.