Jólapakkaskákmót Hugins verður haldið sunnudaginn 18. desember nk. í Álfhólsskóla (Hjallaskóli Álfhólsvegi 120). Mótið hefst kl. 13 og er ókeypis á mótið. Bæjarstjórinn í Kópavogi, Ármann Kr. Ólafsson setur mótið og leikur fyrsta leikinn. Mótið er fyrir börn og unglinga og fer nú fram í 19. skipti en það var fyrst haldið fyrir jólin 1996. Síðan hefur það verið haldið nánast á hverju ári og hefur alltaf verið eitt fjölmennasta skákmót ársins.

Keppt verður í allt að 6 flokkum:

  • Flokki fæddra 2001-2003
  • Flokki fæddra 2004-2005
  • Flokki fæddra 2006-2007
  • Flokki fæddra 2008-2009
  • Flokki fæddra 2010 síðar
  • Peðaskák fyrir þau yngstu

Tefldar verða 5 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann nema í tveimur síðustu flokkunum. Í flokki 2010 og síðar verður umhugsunartíminn 7 mínútur á mann og peðaskákin er klukkulaus. Þessir flokkar klárast því fyrr. Jólapakkar eru í verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bæði drengi og stúlkur. Auk þess verður happdrætti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig.

Í verðlaun verða meðal annars: bækur, húfur, mynddiskar, leikir, pússluspil, töfl og fleira. Í lokinn verður happdrætti þar sem m.a. verður dreginn út Bluetooth hátalari frá Sjónvarpsmiðstöðinn. Allir þátttakendur fá svo við brottför góðgæti frá Góu.

Skráningarform

Skráðir keppendur